Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara var haldinn með pomp og prakt um helgina í Stykkishólmi og mikið var um dýrðir. Eitt af því sem gert var á fundinum var að heiðra einstaklinga sem hafa skarað fram úr í faginu og tileinkað líf sitt matreiðslunni.
Jakob Hörður Magnússon, betur þekktur sem „Kobbi á Horninu“, var heiðraður með heiðursorðu Klúbbs matreiðslumeistara fyrir einstakt æviverk sitt í þágu íslenskrar veitingamenningar, bæði hérlendis og erlendis, á aðalfundi klúbbsins, laugardaginn 3. maí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Jakob hefur verið ómissandi hluti af íslenskri veitingasögu í áratugi. Hann stofnaði veitingastaðinn Hornið árið 1979 ásamt eiginkonu sinni, Valgerði Jóhannsdóttur, eftir að hafa dvalið í Danmörku og starfað á virtum veitingastöðum þar. Hornið var fyrsti ítalski veitingastaðurinn á Íslandi og hefur verið í eigu sömu fjölskyldu síðan. Veitingastaðurinn er þannig ekki aðeins elsti ítalski staður landsins heldur einn sá stöðugasti og traustasti að því fram kemur í tilkynningunni.
„Jakob hefur lagt mikið af mörkum til menntunar og þróunar matreiðslumanna á Íslandi. Hann sat í sveinsprófsnefnd á þriðja áratug og hefur kennt ungu fólki fagið af ástríðu og alúð. Þar að auki hefur hann gegnt mikilvægum trúnaðarstörfum fyrir stéttina, hann var forseti Klúbbs matreiðslumeistara í sex ár og forseti Norðurlandasamtaka matreiðslumeistara (NKF) í tvö ár,“ segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreislumeistara.
„Í viðurkenningu fyrir framlag sitt hefur Jakob hlotið fjölda viðurkenninga. Hann hlaut Cordon Bleu orðu KM 1996 en hann hefur einnig hlotið sömu viðurkenningu bæði íFinnlandi og Danmörku. Að auki hlaut hann Gordon Rouge orðu NKF 1997,“ bætir Þórir við.
Árið 2021 gaf Jakob út bókina Hittumst á Horninu, sem segir sögu Hornsins og fjölskyldunnar sem hefur haldið utan um staðinn í yfir fjóra áratugi. Bókin er ekki aðeins uppskriftasafn heldur einnig heimild um þróun veitingamenningar í Reykjavík – þar sem Hornið hefur einnig starfað sem menningarhús með tónlist, myndlist og leikhús.
„Heiðursorð KMsem Jakob hlaut í gær er ekki aðeins viðurkenning fyrir langan og farsælan starfsferil heldur einnig tákn um þakklæti og virðingu frá kollegum, fyrir ómetanlegt framlag til matargerðar og menningar á Íslandi og Norðurlöndum,“ segir Þórir að lokum.