Aðalfundur Klúbbs matreiðslumeistara (KM) fór fram laugardaginn 3. maí síðastliðinn á Fosshótel Stykkishólmi. Alls mættu 44 félagar til fundarins, sem einkenndist af góðri stemningu og virkum umræðum að því fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf þar sem farið var yfir starfsemi og rekstur síðasta árs, reikningar samþykktir og stjórnarkjör framkvæmt. Að sögn Þóris Erlingssonar, forseta Klúbbs matreiðslumeistara, fór fundurinn vel fram og ríkti jákvæð og uppbyggileg stemning meðal fundargesta.
„Sérstaklega skemmtilegar og líflegar umræður sköpuðust undir liðnum önnur mál, þar sem rætt var um möguleika á frekara starfi ungliðadeildar og nemadeildar innan klúbbsins. Mikill áhugi var á að efla þátttöku ungs fagfólks í starfi KM og ýmsar góðar hugmyndir komu fram um hvernig megi styðja við unga matreiðslumenn í námi og starfi.
Að loknum aðalfundi tók við árshátíð KM þar sem félagar skemmtu sér með mökum þar sem mikið var um dýrðir.
„Einnig fengu félagarnir, Axel Jónsson, Sigurður Einarsson og Þórarinn Sigurðsson, afhenta Cordon Bleu-orðu KM fyrir störf sín fyrir KM og fagið við hátíðlega athöfn. Síðan var Jakobi Herði Magnússyni veitt heiðursorða KM, en hann er fimmti félagi KM sem hlýtur þann heiður,“ segir Þórir sem var afar ánægður með helgina og hversu vel tókst til í alla staði.
Hér má sjá nokkrar myndir frá gleðinni.