Ef ykkur langar í virkilega góðan fiskrétt sem er fljótlegt að elda og er hollur þá er þetta rétturinn. Osturinn og aspasinn passa svo vel saman með fisknum og hægt er að nota hvaða hvíta fisk sem er. Sama má segja um ostinn en Vesturós osturinn er ákaflega góður og líka Feykir. Fer allt eftir smekk hvers og eins.
Sjálf vel ég ávallt græna aspasinn, ferskan, þegar ég ætla að matreiða rétti með aspas. Hann bragðast svo vel og áferðin á honum er líka svo góð.
Heiðurinn af þessari uppskrift á Thelma Þorbergsdóttir matarbloggari með meiru.
Ofnbakaður fiskur með osti og aspas
Fyrir 2-4
- 600 g þorskur
- 70 g Vesturós eða annar osturinn sem heillar
- 2 tsk. ítölsk kryddblanda
- 1⁄2 tsk. pipar
- 1 tsk. sjávarsalt
- 1 msk.steinselja, smátt skorin
- 3 stk. hvítlauksgeirar
- 1 msk.ólífuolía
- 1⁄2 stk. sítróna
- 1 búnt ferskur aspas, grænn
Aðferð:
- Hitið ofninn í 200°C hita og setjið fiskinn í eldfast mót.
- Rífið niður ostinn með rifjárni og blandið honum saman við ítalska kryddblöndu, pipar, salt, steinselju og rifinn hvítlauk.
- Hrærið öllu vel saman.
- Skolið aspasinn og brjótið neðst af honum. Það er líka gott að setja hann í sjóðandi vatn í um það bil eina mínútu áður en þið setjið hann í eldfasta mótið.
- Raðið honum meðfram fisknum í eldfasta mótið.
- Setjið ólífuolíuna yfir fiskinn og aspasinn.
- Setjið ostablönduna yfir allan fiskinn svo blandan þeki hann alveg.
- Skerið niður hálfa sítrónu og raðið henni yfir aspasinn ásamt smá grófu sjávarsalti.
- Bakið í 15 mínútur eða þar til fiskurinn er orðinn fulleldaður.
- Gott er að kreista ferska sítrónu yfir fiskinn.
- Berið fram með því sem hugurinn girnist.