Fyrirtækið Eldum rétt, sem býður upp á heimsenda matarpakka ásamt uppskriftum, býður nú upp á heimshornaflakk þegar matargerðin er annars vegar þessa dagana sem er nýtt af nálinni. Krista Hall er markaðsstjóri hjá Eldum rétt og segir að þessi viðbót sé kærkomin í flóruna.
„Þetta er splunkunýtt konsept hjá okkur sem við komum til með að hafa nokkrum sinnum á ári og við ríðum á vaðið með mexíkóskri matargerð.
Í tilefni af Heimshornadögunum ætlum við líka að gleðja viðskiptavini og lauma ferðavinning að verðmæti 1.000.000 kr. í einn af matarkössunum, af hvaða tagi sem er, bæði hefðbundnum Veldu rétt kössum og Mexíkóveislunni sem keyptir eru fyrir miðnætti, á morgun 7. maí,“ segir Krista með bros á vör.
„Strákarnir í vöruþróun hjá okkur eru búnir að þróa dásamlega og splunkunýja rétti fyrir tilefnið og þeirra á meðal er Taco Birria sem hefur farið sigurför um TikTok - ekki að ástæðulausu, ásamt fjölda annarra girnilegra rétta.
Við erum líka að bjóða upp á þá nýjung að geta pantað heilt matarboð heim að dyrum með Mexíkóveislunni okkar sem er sannkölluð fiesta.“
Mexíkó-matarboðið inniheldur fjóra rétti sem henta vel fyrir 6 til 8 manns:
Fyrir áhugasama er hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Mexíkóveisluna hér.