Það var fullt út úr dyrum á Lólu

Sigurður Laufdal og teymið hans bauð í opnunarpartí á veitingastaðnum …
Sigurður Laufdal og teymið hans bauð í opnunarpartí á veitingastaðnum Lólu um helgina sem sló í gegn. Gabríel Kr. Bjarnarson Kokkur ársins, Sindri Guðbrandur Sigurðrsson stjörnukokkur mættu ásamt betri helmingnum, Bryndís fagnaði með sínum manni, Sigga Lauf, Sigurður Hall og Guðmundur G. Péturson létu sig ekki vanta í gleðina. Samsett mynd

Stjörnukokkurinn Sigurður Laufdal og teymið hans stóðu fyrir líflegu og skemmtilegu opnunarteiti á veitingastaðnum Lólu um helgina. Það er engum blöðum um það að fletta að það var ys og þys og það ætlaði allt um koll að keyra í gleðinni og voru húsakynnin sannarlega full út úr dyrum.

Sigurður stjörnu- og listakokkurinn, oftast nær kallaður Siggi Lauf, ákvað að leggja á ný mið að nýju og hyggst opna glænýjan veitingastað, Lólu, sem verður til húsa í Hafnarhvoli að Tryggvagötu 11 þar sem veitingastaðurinn Anna Jóna var áður til húsa. Staðurinn mun opna formlega á morgun, miðvikudaginn 7. maí næstkomandi, og bókanir eru nú þegar farnar að streyma inn enda enginn svikinn þegar Siggi Lauf kemur nálægt matseldinni.

Fjölmargir gestir lögðu leið sína í opnunarteitið og þar mátti sjá marga af þekktustu kokkum landsins ásamt ýmsu fólki úr veitingahúsageiranum. Meðal þeirra sem komu og fögnuðu opnun staðarins voru Gabríel Kr. Bjarnason, nýkrýndur Kokkur ársins, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, sem einnig hefur hlotið titilinn Kokkur ársins, Snædís Jónsdóttir kokkur og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, Sigurður Hall sjónvarpskokkur með meiru svo fátt sé nefnt.

Þetta fallega skilti prýðir staðinn fyrir utan.
Þetta fallega skilti prýðir staðinn fyrir utan. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir

Bæði hrærður og meyr

Siggi Lauf var bæði hrærður og meyr við viðtökum gesta og þakklátur fyrir hversu vel er tekið á móti Lólu í sívaxandi veitinga- og menningarflóru borgarinnar.

Aðspurður segir Sigurður Laufdal: „Við stefnum að því að opna formlega á morgun, 7. maí, og hlökkum mikið til að taka á móti gestum. Mikil áhersla verður lögð á framúrskarandi góða þjónustu, spennandi matseðil og ljúffenga kokteila sem og góð vín. Í matargerðinni verður áherslan á ítalska matargerð sem hefur verið að heilla mig svolítið upp á síðkastið, þannig að Lóla verður undir áhrifum frá Ítalíu en á sama tíma mun hugmyndaflugið hjá mér og teyminu ráða för,“ segir Sigurður sposkur á svip.

Ætli þetta verði heitasti staðurinn?

Veitingastaðurinn er stór og rúmar mikinn fjölda gesta. Jafnframt er stór og fallegur bar sem verður gaman að sitja á og njóta góðra kokteila og matar. Ekki má gleyma að nefna bíósalinn sem er inn af staðnum en þar er hægt að njóta þess að horfa á ræmu og dreypa á góðum drykkjum fyrir og eftir mat. 

Spurning hvort þetta verði heitasti veitingastaðurinn í sumar og hvort Gordon Ramsay, betur þekktur sem Michelin-stjörnu matreiðslumaður, veitingamaður, sjónvarpsmaður og rithöfundur mæti á svæðið líkt og hann hefur gert undanfarin ár þar sem Siggi Lauf er í eldhúsinu skal ósagt látið.

Sjáið myndirnar sem lýsa vel gleðinni sem var völd í teitinu:

 

 

Sindri Guðbrandur Sigurðsson og María Dögg Elvarsdóttir.
Sindri Guðbrandur Sigurðsson og María Dögg Elvarsdóttir. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Bryndís Þórðardóttir og Sigurður Laufdal.
Bryndís Þórðardóttir og Sigurður Laufdal. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Eydís Ágústsdóttir og Gabríel Kr. Bjarnarson.
Eydís Ágústsdóttir og Gabríel Kr. Bjarnarson. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Safa Jemai og Sigurður Laufdal.
Safa Jemai og Sigurður Laufdal. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Sigurður Hall og Guðmundur G. Pétursson.
Sigurður Hall og Guðmundur G. Pétursson. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Karl Jónasson og Sigurður Gísli Pálmason.
Karl Jónasson og Sigurður Gísli Pálmason. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Troðfullt var út úr dyrum.
Troðfullt var út úr dyrum. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Friðgeir Eiríksson, Tóti og Jóhann Steinn Eggertsson.
Friðgeir Eiríksson, Tóti og Jóhann Steinn Eggertsson. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Helena, Mica­ela Aj­anti, Sigurður Laufdal og Gyða Víðis.
Helena, Mica­ela Aj­anti, Sigurður Laufdal og Gyða Víðis. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Gunnlaugur, Guðrún Inga Eggertsdóttir og Snædís Jónsdóttir.
Gunnlaugur, Guðrún Inga Eggertsdóttir og Snædís Jónsdóttir. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Sigurður ásamt teyminu sínu á Lólu.
Sigurður ásamt teyminu sínu á Lólu. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
David Young, Sigurður Laufdal og Biggi.
David Young, Sigurður Laufdal og Biggi. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Staðurinn er fallegur og bjartur.
Staðurinn er fallegur og bjartur. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Wiktor Pálsson, Jafet Bergmann Viðarsson og Ísak Aron Jóhannsson.
Wiktor Pálsson, Jafet Bergmann Viðarsson og Ísak Aron Jóhannsson. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Viktoría og Telma.
Viktoría og Telma. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Teymið fagnar að þeim áfanga sé náð að geta opnað.
Teymið fagnar að þeim áfanga sé náð að geta opnað. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Bræðurnir Sigurður og Ísak Laufdal.
Bræðurnir Sigurður og Ísak Laufdal. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Kokteilarnir runnu út.
Kokteilarnir runnu út. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Mica­ela Aj­anti yfirkokkur staðarins töfrar fram rétti fyrir gestina.
Mica­ela Aj­anti yfirkokkur staðarins töfrar fram rétti fyrir gestina. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Staðurinn er hinn glæsilegasti og hægt er að sitja við …
Staðurinn er hinn glæsilegasti og hægt er að sitja við barborðið og fá kræsingar. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Helena, Mica­ela Aj­anti og Gyða Víðis.
Helena, Mica­ela Aj­anti og Gyða Víðis. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Litríkir kokteilar.
Litríkir kokteilar. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Stílhreint yfirbragð er í forgrunni.
Stílhreint yfirbragð er í forgrunni. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Sigrún Lund og Emilía Sigurðardóttir.
Sigrún Lund og Emilía Sigurðardóttir. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Gleðin við völd.
Gleðin við völd. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Setið var á öllum borðum.
Setið var á öllum borðum. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Stemning náði út á götu.
Stemning náði út á götu. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
Gestirnir geisluðu af gleði.
Gestirnir geisluðu af gleði. Ljósmynd/Rebekka Marinósdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert