Þrír matreiðslumeistarar fengu Cordon Bleu-orðuna

Axel Jónsson, Sigurður Einarsson og Þórður Sigurðsson tóku við hinni …
Axel Jónsson, Sigurður Einarsson og Þórður Sigurðsson tóku við hinni virtu Cordon Beu-orðu hjá Þóri Erlingssyni formanni Klúbbs matreiðslumeistara og Sölva B. Hilmarssyni formanni orðu- og laganefndar KM. Samsett mynd

Á árshátíð Klúbbs matreiðslumeistara, sem haldin var á Fosshótel Stykkishólmi þann 3. maí síðastlinn, voru þrír matreiðslumeistarar heiðraðir með Cordon Bleu-orðu Klúbbs matreiðslumeistara.

Orðan er veitt þeim sem skara fram úr á sviði íslenskrar matargerðar, fagmennsku og þjónustu við samfélagið að því fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.

Það var við hátíðlega athöfn sem Axel Jónsson, Sigurður Einarsson og Þórður Sigurðsson tóku við þessari virtu viðurkenningu fyrir ævistarf sitt og framlag til íslenskrar matarmenningar.

Forseti Klúbbs matreiðslumeistara, Þórir Erlingsson, veitti viðurkenningarnar og þakkaði þeim fyrir óeigingjarnt framlag í faginu. „Þeir eiga skilið að fá þessa verðskulduðu viðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag þeirra til íslenskrar matargerðarlistar og samfélags og það var heiður að afhenda þeim Cordon Bleu-orðuna fyrir hönd klúbbsins,“ segir Þórir.

Stofnaði Skólamat

Axel Jónsson hefur í yfir hálfa öld sinnt matargerð og veitingarekstri af alúð og fagmennsku. Hann lauk sveinsprófi árið 1972 og meistaranámi 1977. Hann starfaði m.a. á Hótel Loftleiðum, Hótel Sögu og sem skólabryti á Laugarvatni.

Axel hefur rekið veisluþjónustu og matvælaframleiðslu fyrir flugfélög, auk þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga. Árið 1999 stofnaði hann Skólamat sem framleiðir daglega um 18.000 skólamáltíðir víðs vegar um landið. Með störfum sínum hefur hann haft djúpstæð áhrif á næringu barna og íslenska matarmenningu.

Þórir Erlingsson, Axel Jónsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina.
Þórir Erlingsson, Axel Jónsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina. Ljósmynd/Aðsend

Yfir fjögurra áratuga reynslu

Sigurður Einarsson er matreiðslumeistari með yfir fjögurra áratuga reynslu. Hann hefur starfað sem yfirkokkur, ráðsmaður og kennari, m.a. hjá Frímúrarareglunni, á Bessastöðum, hjá Reykjavíkurborg og Landspítalanum.

Hann hefur einnig verið virkur í fagfélögum, meðal annars sem félagsmaður í Klúbbi matreiðslumeistara frá 1985 og barist fyrir réttindum nema. Með kennslu, stjórnun og alþjóðlegri reynslu hefur Sigurður lagt sitt af mörkum til eflingar íslenskrar matargerðar og fagvitundar innan greinarinnar.

Þórir Erlingsson, Sigurður Einarsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina.
Þórir Erlingsson, Sigurður Einarsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina. Ljósmynd/Aðsend

Hefur markað djúp spor í veitingabransanum

Þórður Sigurðsson hóf nám í matreiðslu árið 1961 og lauk sveinsprófi 1965. Hann starfaði bæði innanlands og erlendis, meðal annars í Kaupmannahöfn og London, og vann á virtum veitingastöðum á borð við Palace Hotel, Naustið og Iceland Foodcentre. Hann rak eigin veitingastað, Svörtu Pönnuna, í 13 ár við góðan orðstír.

Seinni árin starfaði hann við sölumennsku í kjötvörugeiranum. Ferill hans spannar meira en hálfa öld og hann hefur markað djúp spor í veitingabransanum með ástríðu, fagmennsku og elju.

Þórir Erlingsson, Þórður Sigurðsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina.
Þórir Erlingsson, Þórður Sigurðsson og Sölvi B. Hilmarsson við athöfnina. Ljósmynd/Aðsend
Hópmynd af heiðursfélögum og þeim sem hlutu orðuna virtu á …
Hópmynd af heiðursfélögum og þeim sem hlutu orðuna virtu á nýliðnum aðalfundi. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert