Aðalsjónvarpsrétturinn í dag með mexíkósku ívafi

Ótrúlega djúsí réttur með mexíkósku ívafi.
Ótrúlega djúsí réttur með mexíkósku ívafi. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar töfraði fram þennan einfalda, fljótlega og góða rétt með mexíkósku ívafi sem fullkomið er að bjóða upp á fyrir helgina. Þetta er ekta stemningsréttur sem er líka að upplagt að bjóða upp á meðan horft er á keppnisleiki á skjánum og getur líka steinlegið þegar Eurovison-gleðin hefst í sjónvarpinu.

Til að gera réttinn matmeiri er trixið að setja franskar kartöflur undir og bbq-sósan gerir þennan einstaklega djúsí. Það er líka hægt að vera með venjulegar franskar ef vill. Hver og einn getur leikið sér með hráefnið eftir sínu nefi.

BBQ-nachos í ofni

Fyrir 4

  • 450 g sætkartöflufranskar
  • 450 g eldaður kjúklingur
  • 200 g Heinz Sweet BBQ sósa
  • Nachos flögur
  • ½ rauðlaukur
  • 4 msk. svartbaunir
  • 4 msk. gular baunir
  • Smá jalapeno úr krukku
  • Rifinn ostur
  • Límóna og kóríander yfir í lokin

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 210°C.
  2. Dreifið úr frönskunum (ég notaði einn poka af frosnum sætkartöflufrönskum) á ofnskúffu/eldfast mót, bakið í um 18 mínútur og undirbúið annað á meðan.
  3. Skerið niður kjúklinginn, ég notaði eldað kjúklingalærakjöt en það má nota hvað sem er. Blandið honum saman við bbq sósuna.
  4. Skerið laukinn í strimla og undirbúið annað hráefni.
  5. Takið franskarnar út, bætið nachosflögum yfir, síðan kjúklingi og osti yfir og því næst rauðlauk, baunum, jalapeno og meiri rifnum osti.
  6. Bakið áfram í um 12 mínútur og toppið með liímónubátum og kóríander.
  7. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert