Kokkalandsliðið fær sterkan styrktaraðila til liðs við sig

María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól, Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara …
María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól, Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara og Ingi Páll Snæbjörnsson, sölustjóri stóreldhúsasviðs Danól við undirritun samstarfssamningsins.

Danól og Klúbbur matreiðslumeistara hafa undirritað samning sem felur í sér að Danól verður samstarfsaðili íslenska Kokkalandsliðsins sem nú er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið í matreiðslu.

Með samstarfinu vill Danól styðja við það frábæra starf sem fremstu fagmenn landsins á þessu sviði vinna og leggja sitt af mörkum til að tryggja áframhaldandi árangur í greininni.

„Danól vill með þessu jafnframt styrkja og styðja fagmannlega matreiðslu og renna enn styrkari stoðum undir íslenska matarmenningu, bæði hér heima og erlendis. Danól telur einnig mikilvægt að auka enn frekar áhuga ungmenna á matreiðslu og stuðningur við Klúbb matreiðslumeistara getur orðið þeim hvatning til að læra greinina,“ segir María Jóna Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri Danól.

Mikil metnaður er í fyrirrúmi hjá íslenska Kokkalandsliðinu.
Mikil metnaður er í fyrirrúmi hjá íslenska Kokkalandsliðinu. Ljósmynd/Aðsend

Stuðningur þar skiptir sköpum

„Við erum gríðarlega ánægð með að Danól sé gengið til liðs við okkur og þessi stuðningur mun hjálpa okkur enn frekar við undirbúning að næsta stórmóti Kokkalandsliðsins sem fram fer í nóvember árið 2026.

Klúbbur matreiðslumeistara tekur þátt í fjölmörgum mótum, m.a. Nordic Chef og Global Chef og hefur frá stofnun 1972 haft mikil áhrif á framþróun í veitingageiranum. Stuðningur fyrirtækja eins og Danól skiptir þar sköpum,“ segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.

Kokkalandsliðið er nú við æfingar aðra hverja helgi, æfir þar tvo daga í senn og stefnir hátt. Árangur landsliðsins undanfarin ár er skýrt merki um sterka stöðu þess og metnaðinn sem er til staðar.

Auk beins fjárstuðnings mun Danól leggja til ýmsar vörur, en stóreldhúsasvið fyrirtækisins býður upp á heildstæðar lausnir í margvíslegum aðföngum og matvælum sem snúa að rekstri veitingahúsa og í matvælageiranum.

Kokklandsliðið æfir sig nú fyrir næsta stórmót sem er heimsmeistaramótiið …
Kokklandsliðið æfir sig nú fyrir næsta stórmót sem er heimsmeistaramótiið í matreðislu og fer fram í nóvember á næsta ári. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert