Nýja línan minnir á sumarið og er í fallegum pastellitum

Litapallettan í nýju Múmínálfalínunni inniheldur fallega túrkís, fjólubláa, bleika og …
Litapallettan í nýju Múmínálfalínunni inniheldur fallega túrkís, fjólubláa, bleika og kremaða pastelliti. Á myndefninu eru sjór, sandur og sól í forgrunni, Ljósmynd/Aðsend

Ný sumarlína frá Moomin Arabia hefur litið dagsins ljós, án efa, aðdáendum Múmínálfa til mikillar ánægju.

Nýja línan inniheldur krús, disk og aðra muni ásamt mjúkum handklæðum sem ættu að vekja upp tilhlökkun og ættu að minna alla á að njóta útiverunnar í sumar. Hún hefur skírskotun í sumargleðina eins og að skella sér á ströndina, í sund eða í notalega lautarferð þegar sólin lætur sjá sig.

Sumarlínan 2025 er einstaklega litrík og falleg þar sem margar …
Sumarlínan 2025 er einstaklega litrík og falleg þar sem margar Múmínpersónur birtast í ólíkum aðstæðum. Ljósmynd/Aðsend

Skartar fallegum pastellitum

Sumarlínan í ár kallast „Beach Day“ eða Strandardagur á íslensku og skartar fallegum pastellitum ásamt myndum af Múmínálfunum og vinum þeirra að njóta sjávarsíðunnar.

Litapallettan í ár inniheldur fallega túrkís, fjólubláa, bleika og kremaða pastelliti. Á myndefninu eru sjór, sandur og sól í forgrunni, sett fram í fallegu grípandi mynstri í stíl sem helst mætti lýsa sem retró.

Krúsirnar eru sumarlegar.
Krúsirnar eru sumarlegar. Ljósmynd/Aðsend

Múmínsnáðann má sjá í skeljaleit þegar hann rekst á slóð hnappa í eigu Dunda, safnara í Múmíndal, en með þeim tekst samstundis vinskapur.

Á meðan felur Snorkstelpan sig í stórri skel og grætur yfir því að Múmínsnáði veiti henni enga athygli, hann er svo upptekinn í fjársjóðsleit með nýja vini sínum.

Sumarlínan 2025 er einstaklega litrík og falleg þar sem margar Múmínpersónur birtast í ólíkum aðstæðum.

Línan verður fáanleg í helstu lífsstíls- og búsáhaldaverslunum á heimsvísu frá og með deginum í dag, 7. maí.

Til að mynda má sjá Múmínsnáðann í skeljaleit þegar hann …
Til að mynda má sjá Múmínsnáðann í skeljaleit þegar hann rekst á slóð hnappa í eigu Dunda, safnara í Múmíndal, Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert