Brynja Dan kann að skipuleggja veislu

Brynja Dan er þekkt fyrir að halda glæsilegar veislur og …
Brynja Dan er þekkt fyrir að halda glæsilegar veislur og er rómaður fagurkeri. Það verður mikið um veisluhöld þetta árið hjá Brynju. Ljósmynd/Eygló Gísla

Flest höfum við heyrt um fyrirbærið „rehearsal dinner“ í tengslum við glæsileg brúðkaup erlendis en sjaldgæfara er að slíkt tíðkist hérlendis. En það var einmitt raunin í Sjálandi á dögunum.

Brynja Dan, lífskúnstner, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, er þekkt fyrir að halda glæsilegar veislur og er rómaður fagurkeri. Það verður mikið um veisluhöld þetta árið hjá Brynju. Stjúpsonur hennar útskrifast úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í vor og Brynja sjálf verður fertug í lok sumars. Brynja leitaði því til Múlakaffis með það fyrir augum að fullkomna veisluhöldin.

Slógu tvær flugur í einu höggi

Um þessar mundir er veisluþjónustuteymi Múlakaffis, með þá Ísak Aron Jóhannsson og Eyþór Rúnarsson í broddi fylkingar, að frumsýna nýja og spennandi rétti fyrir veislur sumarsins, og þannig kviknaði sú hugmynd að slá tvær flugur í einu höggi og setja upp „rehearsal-veislu“ í Sjálandi, en veislan í tilefni útskriftarinnar fer einmitt fram þar.

„Það að halda veislur er eitt það skemmtilegasta sem ég geri og það er náttúrulega algjör lúxus að fá að prufukeyra veisluna fyrirfram og sjá hvernig þetta kemur til með að líta út á stóra daginn. Ég er svolítið týpan sem fer alla leið þegar kemur að veislum, vil engar óvæntar uppákomur og trúi á s-in þrjú: skipulag, skipulag og skipulag”, segir Brynja og brosir.

Brynja segir að gott skipulag sé grundvallaratriðið þegar veislu skal …
Brynja segir að gott skipulag sé grundvallaratriðið þegar veislu skal halda. Ljósmynd/Eygló Gísla

„Rehearsal-veislan“ tókst frábærlega eins og myndirnar sem fylgja sýna vel og má segja að allt sé því orðið klappað og klárt.

Þetta var virkilega skemmtilegt og gagnlegt enda er ég með teymi af dásamlegum ofurkonum í kringum mig sem ég vinn með aftur og aftur. Eygló Gísla ljósmyndari fangar alltaf ótrúlega eðlilegar og skemmtilegar myndir, Guðríður í Múlakaffi er „geitin“ í veitingum. Og þegar kemur að skreytingum þá finnst mér geggjað að vinna með Svönu Lovísu sem á Studio Flamingo. Hún notast mikið við blóm sem eru ekki lifandi en henta frábærlega til skreytinga, þau eru svo raunveruleg,“ segir Brynja.

Brynju finnst skipta máli að vera með fjölbreytt úrval af …
Brynju finnst skipta máli að vera með fjölbreytt úrval af smáréttum svo allir geti fundi eitthvað við sitt hæfi. Takið líka eftir blómaskreytingunum og hvað þær gera mikið fyrir rýmið. Ljósmynd/Eygló Gísla

Góð veisluráð Brynju Dan

  • S-in þrjú: Skipulag, skipulag, skipulag.
  • Salurinn: Fallegur staður sem tekur vel utan um gesti og er hlýlegur.
  • Góður og fallega framborinn matur sem hentar öllum og er þægilegt að grípa.
  • Vel yfirlesinn gestalisti, má ekki gleyma neinum.
  • Fallegar skreytingar, ekki of mikið, en sumarlegt og ferskt eins og árstíðin.
  • Hljóðkerfi frá Rent a Party og myndakassi skemmir aldrei.
  • Þægilegur playlisti, ekki of hátt stilltur.
  • Ljósmyndari sem sér um að fanga minningarnar.
  • Gestabók.
  • Boðskort á Facebook.

Skarta óviðjafnanlegu sjávarútsýni

Veislusalirnir í Sjálandi skarta óviðjafnanlegu sjávarútsýni og því er töfrum líkast þegar veðurguðirnir ákveða að draga skýin frá á veisludögum. „Auðvitað krossar maður alla 10 fingur með að veðrið verði fallegt, þá verða allar myndir svo fallegar og minningarnar bjartar og sólríkar. Sjáland í góðu veðri er að mínu mati fallegasti veislusalur landsins,“ segir Brynja dreymin á svip.

Sjáland í Garðabæ inniheldur tvo sali og getur því hýst veislur af öllum stærðum og gerðum. „Mér fannst minni salurinn passa best, hann tekur vel utan um þessa fjöldann sem kemur í veisluna, hann er fallegur og alls ekki of kaldur. Mér finnst mikilvægt að veislan sé hlýleg og svo eru veitingarnar náttúrulega aðalstjarnan í veislunni. Þessar veitingar frá Múlakaffi eru náttúrulega himneskar og eiga alveg jafnvel vel við í öllum veislum, brúðkaupum, fermingum, stórafmælum og útskriftum,“ bætir Brynja við.

Skemmtilegt er að bera fram sælkeraspjót eins og þessi sem …
Skemmtilegt er að bera fram sælkeraspjót eins og þessi sem fanga bæði augu og munn. Ljósmynd/Eygló Gísla

Hvaða nýju og spennandi rétti er veisluþjónustan að frumsýna?

Ísak Aron, lykilmaður í veisluþjónustuteymi Múlakaffi og landsliðsfyrirliði kokkalandsliðsins, var fljótur að svara því. „Við erum búnir að vera í tilraunaeldhúsi undanfarin misseri og erum að springa úr spenningi að frumsýna nýju réttina. Til að nefna einhverja þá erum við með pönnusteikta, argentíska risarækju í hvítlauks- og chili-olíu með ferskum basil,nauta- og ostakrókettu með parmesan-majónesi, Brie-ostasalat í tartalettu með stökku salami og Yuzu og sítrónumús í súkkulaðiskel með stökkum hindberjum.“

Ísak Aron Jóhannsson og kokkateymið hugsa fyrir hverju smáatriði þegar …
Ísak Aron Jóhannsson og kokkateymið hugsa fyrir hverju smáatriði þegar veislurkræsingarnar eru annars vegar. Ljósmynd/Eygló Gísla

„Það eru því spennandi og bragðgóðir tímar framundan í veisluhöldum sumarsins,“ segir Brynja að lokum sem er orðin spennt að bjóða til veislu.

Fyrir áhugasama má skoða alla þessa smárétti og meira til er hægt að skoða og panta á vefsíðu Múlakaffi.

Sumarlegir réttir eru í forgrunni.
Sumarlegir réttir eru í forgrunni. Ljósmynd/Eygló Gísla

 

Sætu bitarnir fá líka sitt pláss til gleðja bragðlaukana.
Sætu bitarnir fá líka sitt pláss til gleðja bragðlaukana. Ljósmynd/Eygló Gísla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert