Svavar afhjúpar leyndardómsfullu uppskriftina að drykk ársins

Svavar Helgi Ernuson sigraði keppnina um RWC drykk ársins í …
Svavar Helgi Ernuson sigraði keppnina um RWC drykk ársins í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svavar Helgi Ernuson veitingastjóri og barþjónn á Tipsý bar við Hafnarstræti vann keppnina um drykk ársins á kokteilahátíðinni Reykjavík Cocktail Week í ár. Vinningsdrykkurinn eða RCW drykkurinn ber enska heitið Fantaisie Francaise og vakti mikla athygli dómnefndar fyrir bragð, áferð og útlit.

Svavar, sem er einnig eigandi að Tipsý bar, er afar ánægður með þennan titil og segir það vera virkilega góða tilfinningu að hafa unnið þennan titil. „Það var virkilega gleðilegt að taka þennan titil með sér heim,“ segir Svavar og brosir hringinn.

Aðspurður segist hann alls ekki hafa farið í keppnina með miklar væntingar um sigur. „Ég var ekki búinn að taka þátt í neinni kokteilakeppni í frekar langan tíma og langaði til að henda mér aftur út í djúpu laugina og skráði mig til leiks og þetta var útkoman,“ segir Svavar og glottir.

Svavar Helgi kann að blanda góða kokteila.
Svavar Helgi kann að blanda góða kokteila. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ætlaði alltaf að verða lögreglumaður

„Ég ætlaði mér ekki að verða barþjónn í fyrstu, alveg frá því að ég var lítill polli langaði mig alltaf verða lögreglumaður. Ástríðan fyrir þessu starfi kom ekki fyrir fyrr en á unglingsárunum, þegar ég var um 16, 17 ára gamall. En ég byrjaði í bransanum árið 2010 sem barþjónn á Sushi Samba, sem er Sushi Social í dag, og vann mig svo upp sem veitingarstjóra og síðan sem meðeigandi.

Það sem heillar mig við kokteilagerð er listin við að setja saman skemmtileg og flókin hráefni til þess að búa til ferska og ljúffenga drykki. Það er eitthvað við það sem hrífur mig.“

Það er list að kunna að blanda góða drykki.
Það er list að kunna að blanda góða drykki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þegar Svavar er beðinn um að lýsa sínum barþjónastíl segir hann stílinn sinn vera frekar „elegant“ og „old school“ með módernísku tvisti.

„Góður barþjónn þarf fyrst og fremst að vera opinn fyrir öllum bragðflokkum og vita hvernig á að vinna með þá. Fljótfærni er einnig mikilvægt lykilatriði. En þetta eru líka hlutir sem maður lærir með tímanum og hver sem er getur orðið góður barþjónn ef viljinn er fyrir hendi.“

Sviðshæfileikar og fagleg vinnubrögð

Svavar hefur tekið þátt í fjölda kokteilakeppna og segist ekki hafa töluna yfir hve margar þær eru orðnar en hann á fjóra titla að baki. Hann er líka meðvitaður um hvaða hæfileikum góður barþjónn þarf að búa yfir til að heilla dómnefndirnar í þessum keppnum upp úr skónum.

Svavar Helgi hellir blöndunni gegnum sigti í lokin.
Svavar Helgi hellir blöndunni gegnum sigti í lokin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Sviðshæfileikar, fagleg vinnubrögð og að kunna að gera ljúffenga drykki sem ilma og lykta vel er leiðin til sigurs,“ segir Svavar með bros á vör. Sjálfur á hann sín uppáhaldsvín þegar hann ætlar að gera góða kokteila en það bourbon, viský, koníak og gæða tequila.

„Það skiptir máli að vera með góð og fersk hráefni, einnig skiptir líka sköpun að nota réttu hráefnin. Finna hvað passar vel saman og ekki að vera hrædd við að prófa eitthvað öðruvísi,“ segir Svavar.

Svavar afhjúpar hér uppskriftina að vinningsdrykknum sínum sem náði að hrífa alla dómnefndina með sér og kallast eftir sigurinn RWC drykkur ársins 2025. En drykkur ársins er væntanlegur á næstunni á barseðilinn á Tipsý bar svo þeir sem ekki treysta sér til að blanda þennan geta skroppið á Tipsý að smakka. Vert er að fylgjast með samfélagsmiðlunum hjá Tipsý til að sjá hvenær drykkurinn frægi verður kominn á seðil.

Gullfallegur drykkur, Fantaisie Francaise – RWC drykkur ársins 2025.
Gullfallegur drykkur, Fantaisie Francaise – RWC drykkur ársins 2025. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fantaisie Francaise – RWC drykkur ársins 2025

  • 45 cl Noisette-smjör, prima donna cheese fat washed Camus cognag
  • 45 cl heimatilbúið marmelaði cordial
  • 20 cl Montenegro amaro

Aðferð:

  1. Setjið hráefnin í kokteilhristara og hristið vel.
  2. Hellið blöndunni í gegnum sigti í fallegt, lítið glas á fæti og skreytið að vild.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert