Ljúffeng skúffukaka sem yljar sálinni

Þessi skúffukaka lítur ómótstæðilega vel út og tilvalið að baka …
Þessi skúffukaka lítur ómótstæðilega vel út og tilvalið að baka hana með helgarkaffinu. Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Er ekki upplagt að baka ljúffenga skúffuköku með helgarkaffinu? Þegar okkur langar að fá góða gesti heim í kaffi þá er lag að gleðja þá með skúffuköku sem hlýjar sálinni.

Þessi skúffukaka er góð fyrir sálina, með smá kanilbragði og örlitlum kaffikeim. Galdurinn við mýktina í kökunni er Óskajógúrtið með hnetu- og karamellubragði. Uppskriftin er einmitt góð fyrir rigningar- og haglélsdaga að vori og sumri og kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur, matarbloggara hjá Eldhúsperlum. Uppskriftina gerði hún fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn.

Skúffukakan

  • 5 dl hveiti
  • 4 dl sykur
  • 1 tsk. kanill
  • 2 msk.kakó
  • 1⁄2 tsk.salt
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. lyftiduft
  • 2 dósirÓskajógúrt með hnetu- og karamellubragði
  • 2 stk. egg
  • 2 dl mjólk
  • 2 tsk. vanilluextrakt
  • 150 g smjör, brætt

Á milli

  • 3 msk.sykur
  • 2 tsk.kanill

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 170°C með blæstri.
  2. Hrærið öllum þurrefnum saman í skál.
  3. Pískið saman jógúrt, eggjum, mjólk og vanillu og hellið út í deigið.
  4. Bætið að lokum bræddu smjöri saman við og blandið vel saman.
  5. Hellið helmingnum af deiginu í skúffukökuform, stráið kanilsykrinum á milli og breiðið svo restina af deiginu yfir.
  6. Bakið í um það bil 25-30 mínútur eða þar til bakað í gegn.

Kaffikrem

  • 250 g flórsykur
  • 2 msk.kakó
  • 75 g smjör, brætt
  • 4 1⁄2 msk. heitt sterkt kaffi
  • 1 tsk. vanilluextrakt
  • smá klípa sjávarsalt

Aðferð:

  1. Gerið kremið meðan kakan er í ofninum.
  2. Pískið öllum hráefnum saman og bætið heitu kaffi smám saman út í þar til kremið er passlega þykkt.
  3. Hellið kreminu yfir heita kökuna og látið standa í 15 mínútur áður en hún er borin fram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert