Klassíska kjúklingasósan hennar Freyju er skotheld

Kjúklingasósan hennar Freyju á gamla mátann.
Kjúklingasósan hennar Freyju á gamla mátann. Ljósmynd/Andrea Gunnars

Þessi dásamlega góða kjúklingasósa kemur frá vinkonu Andreu Gunnarsdóttur, matarbloggara með meiru, sem heldur úti sinni eigin uppskriftavef.

Andrea mælir hástert með þessari sósu og segir hana passa ákaflega vel með heilgrilluðum kjúkling og meðlæti. Það má með sanni segja að þetta sé hin klassíska sósa sem var borin fram með kjúkling hér fyrst um sinn.

Þessi sósa er svo dásamlega góð að maður gæti hreinlega drukkið hana. Ekki skemmir fyrir hvað hún er súper einföld í gerð og ekki mörg hráefni. Ég bar sósuna fram með kjúklingi og rótargrænmeti en franskar og hrísgrjón myndu eflaust fara prýðilega vel með sósunni líka,“ segir Andrea um sósuna ljúfu.

Þessi passar ákaflega vel með heilgrilluðum kjúkling og klassísku meðlæti.
Þessi passar ákaflega vel með heilgrilluðum kjúkling og klassísku meðlæti. Ljósmynd/Andrea Gunnars

Sósan hennar Freyju

  • 50 g smjör
  • 2 msk. hveiti
  • 500 ml kjúklingasoð (annaðhvort af kjúklingnum eða úr fernu)
  • 2 kjúklingateningar
  • ½ msk. sojasósa
  • Salt og pipar eftir smekk
  • 2 dl rjómi
  • Sósulitur til að dekkja sósuna (má sleppa)
  • Maizenamjöl til að þykkja (má sleppa)

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í potti á miðlungsháum hita.
  2. Bætið hveitinu saman við og steikið í smástund.
  3. Bætið soðinu smám saman í pottinn og hrærið stöðugt í á meðan.
  4. Setjið kjúklingateninga, sojasósu, salt og pipar eftir smekk og rjóma í pottinn og látið suðuna koma upp.
  5.  Lækkið hitann og látið sósuna malla í 15-20 mínútur.
  6. Dekkið með sósulit og þykkið með maizenamjöli ef vill. Smakkið til með salti, pipar og sojasósu.
  7. Berið fram með kjúking og meðlæti eftir smekk.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert