Nýverið var undirritaður bakhjarlssamningur á milli Bako Verslunartækni og Klúbbs matreiðslumeistara. Samningurinn var undirritaður í glæsilegum sýningarsal Bako Verslunartækni að Draghálsi 22, 110 Reykjavík að því fram kemur í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara.
Þar kemur fram að á næstu árum muni Bako Verslunartækni styrkja hina mikilvægu starfsemi Klúbbs matreiðslumeistara bæði með fjárframlagi og vörustyrk.
„Við hjá Bako Verslunartækni erum virkilega stolt af því að halda áfram okkar frábæra samstarfi við Klúbb matreiðslumeistara, ásamt því í leiðinni að efla og stækka samstarfssamninginn enn frekar með því að gerast bakhjarl klúbbsins,” segir Sverrir Viðar Hauksson, forstjóri Bako Verslunartækni.
„Það er jafnframt mikill heiður að okkar heimsþekkti birgi, Rational, sem er stærsti ofnaframleiðandi á heimsvísu, mun taka þátt í þessu með okkur með sýnileika Rational-vörumerkisins á höttum landsliðsins sem notaðir eru í keppnum og mótum hér heima og erlendis,“ bætir Sverrir við.
„Klúbbur matreiðslumeistara er í forsvari fyrir íslenska matarmenningu og framþróun hennar. Það er aðdáunarvert að horfa til þess árangurs sem náðst hefur á undanförnum árum hjá íslenska kokkalandsliðinu og matreiðslumeisturum. Öflug og markviss starfsemi klúbbsins er hornsteinn og bakland stéttarinnar. Við hjá Bako Verslunartækni teljum mikilvægt að leggja Klúbbi matreiðslumeistara lið til að styðja við hið góða starf hans,” segir Sverrir.
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara er þakklátur fyrir stuðninginn og segir hann skipta sköpum til að tryggja rekstur kokkalandsliðsins.
„Fyrir okkur í Klúbbi matreiðslumeistara er mikilvægt að hafa öflugan hóp samstarfsaðila með okkur í liði, það að Bako Verslunartækni bætist í hóp okkar frábæru bakhjarla hjálpar okkur gríðarlega við að tryggja rekstur Kokkalandsliðanna til framtíðar,“ segir Þórir.
Bako Verslunartækni sérhæfir sig í vöruvali, tækjakosti og þjónustu fyrir stóreldhús, mötuneyti, veitingastaði, hótel, verslanir, bakarí, bari og vöruhús. Fyrirtækið býður upp á fjölbreyttar heildarlausnir, bæði staðlaðar og sérsniðnar eftir þörfum viðskiptavina.