Rífandi stemning á Tipsý þegar Salmon Guru tók staðinn yfir

Það ætlaði allt um koll að keyra um helgina þegar …
Það ætlaði allt um koll að keyra um helgina þegar einn frægasti bar í Evrópu, Salmon Guru, bauð upp á pop-up á Tipsý bar. Ljósmynd/Aðsend

Síðustu helgi var hinn heimsþekkti bar, Salmon Guru í Madríd, með pop up Tipsý bar & lounge við Hafnarstræti. Salmon Guru er í 23. sæti á lista The World's 50 Best Bars og er þekktur fyrir meistaralega en gáskafulla nálgun á kokteilagerð.

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar barþjónarnir byrjuðu að hrista fram kokteilana og þeir höfðu ekki undan að taka við pöntunum hjá gestum.

Í tilefni heimsóknarinnar hönnuðu Diego Cabrera, stofnandi staðarins á Madríd, og spænski listamaðurinn Piñero sérstakt glas við hliðina fyrir viðburðinn, undir áhrifum þjóðarblóms Íslendinga, Holtasóleyjar, sem sló rækilega í gegn.

„Við erum í skýjunum með glasið sem var sérhannað fyrir viðburðinn og verður áfram hjá okkur og líka þakklát fyrir frábærar móttökur á pop -up-inu. Á fyrsta kvöldinu seldust kokteilarnir upp og stemningin var ólýsanleg og röðin inn á staðinn náði langt út á götu. Það má með sanni segja að þátttakan hafi verið langt umfram væntingar,“ segir Sævar Helgi Örnólfsson, einn af eigendum Tipsý.

 

Diego Ca­brera og Adri­án Sehob voru glaðir með móttökrunar á …
Diego Ca­brera og Adri­án Sehob voru glaðir með móttökrunar á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend
Gleðin var allsráðandi.
Gleðin var allsráðandi. Ljósmynd/Aðsend
Gestirnir voru ánægðir með kokteilana.
Gestirnir voru ánægðir með kokteilana. Ljósmynd/Aðsend
Kokteilarnir voru listrænir.
Kokteilarnir voru listrænir. Ljósmynd/Aðsend
Allir í stuði.
Allir í stuði. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert