Mjólkursamsalan setur nú í fyrsta sinn á markað sælkerarjómaost en um er að ræða rjómaost með hvítu súkkulaði sem verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma að því fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Rjómaostur með hvítu súkkulaði er silkimjúkur, rjómakenndur og einstaklega góður á bragðið og notkunarmöguleikarnir eru ótæmandi.
„Hægt er að nota nýja rjómaostinn eins og hefðbundið rjómaostakrem og setja á kökur og kanilsnúða, kex, hrís- og maískökur svo dæmi séu nefnd, og þá hentar hann enn fremur frábærlega í ostakökur,“ segir Gréta Björg Jakobsdóttir, markaðs- og vöruflokkastjóri hjá MS.
„Svo er um að gera að prófa sig áfram með rjómaostinn í matargerð því hver veit hvað gerist þegar rjómaostur með hvítu súkkulaði hittir fyrir hefðbundið lasanja eða góða súpu.“
Nýi rjómaosturinn aðalstjarnan
Ef rjómaostur er í uppáhaldi er upplagt að verða sér úti um dós af þessari nýjung og smakka því hér er um að ræða fyrsta íslenska rjómaostinn með hvítu súkkulaði og óvíst hvenær svona góðgæti verður aftur í boði.
Nýi rjómaosturinn með hvítu súkkulaði verður aðeins á markaði í takmarkaðan tíma.
Ljósmynd/Aðsend
Í tilefni þessa deilir Gréta með lesendum þessari uppskrift að litlum ostakökum með hvítu súkkulaði þar sem nýi rjómaosturinn er aðalstjarnan.
Ostakökur með hvítu súkkulaði
- 125 g heilhveitikex
- 40 g brætt smjör
- 100 g flórsykur
- 250 ml rjómi frá Gott í matinn
- 2 tsk. vanilludropar
- 200 g rjómaostur með hvítu súkkulaði frá MS
- 50 g hvítt súkkulaði, brætt
- Fersk ber að eigin vali: jarðarber, brómber, bláber og hindber
Aðferð:
- Setjið kexið í poka og rúllið yfir það með kökukefli.
- Einnig er hægt að vinna það í matvinnsluvél en fyrir þessar kökur er gott ef kexmylsnan sé ekki of smátt mulin.
- Hellið mylsnunni í skál og blandið bræddu smjörinu saman við.
- Setjið rjóma, flórsykur og vanillu í skál og stífþeytið. Bætið rjómaostinum saman við og þeytið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Bræðið súkkulaðið, leyfið mesta hitanum að rjúka úr því.
- Setjið þá 1–2 msk. af ostakökublöndunni saman við súkkulaðið til að tempra það.
- Bætið svo þeirri blöndu út í ostakökublönduna og blandið varlega með sleikju.
- Takið fram lítil glös, það skiptir ekki öllu máli af hvaða stærð þau eru, því minni glös þeim mun fleiri ostakökur.
- Setjið fyrst mylsnu í botninn og því næst ostakökublöndu.
- Endurtakið en setjið þykkara lag af ostakökublöndunni efst.
- Skreytið með ferskum berjum að eigin vali.
- Hægt er að gera ostakökurnar með góðum fyrirvara og geyma í kæli.
- Skreytið þá með berjum rétt áður en þær eru bornar fram.