Kátar konur og kræsingar í Elliðaárdalnum

Kátar konur nutu góðra kræsinga sem Áslaug Snorradóttir matarstílisti og …
Kátar konur nutu góðra kræsinga sem Áslaug Snorradóttir matarstílisti og Eirný Sigurðardóttir ostadrottning göldruðu fram með ævintýralegum hætti. Samsett mynd

Á sólríku sumarkvöldi fyrir nokkru komu kátar konur saman á pallinum við Höfuðstöðina í Elliðaárdalnum við gömlu kartöfluskemmurnar. Þar nutu þær samveru, veitinga og uppskeru sumarsins undir handleiðslu Áslaugar Snorradóttur, matarstílista og ljósmyndara, og Eirnýjar Sigurðardóttur ostadrottningar.

Eirný Sigurðardóttir ostadrottning og Áslaug Snorradóttir matarstílisti eru sérfræðingar á …
Eirný Sigurðardóttir ostadrottning og Áslaug Snorradóttir matarstílisti eru sérfræðingar á sínu sviði. Samsett mynd

Áslaug og Eirný standa að Iceland Picnic, sem sérhæfir sig í því að skapa einstaka matarupplifanir hvort sem um er að ræða að töfra fram upplifun í laut, uppskeruhátíð eins og þessa, eða afslappað gómsætis grill í garði.

Kryddað með stæl

Í boði var kraftmikil og ilmandi Bloody Mary-súpa sem gestir gátu smakkað til eftir eigin höfði. Í súpuna mátti bæta ferskri piparrót, tabasco, sellerísalti, Worcestershire-sósu, Tajín-kryddi, svörtum pipar, basil og meira til.

„Allt þetta mátti toppa með dásamlegu Haust Vodka fyrir þá sem vildu styrkjandi skvettu. Með súpunni voru einnig sellerístilkar til að hræra með og falleg meðlætisspjót til að narta í,“ segir Eirný og glottir.

Í anda miðjarðarhafsins töfruðu Áslaug og Eirný fram þessi meðlætisspjót.
Í anda miðjarðarhafsins töfruðu Áslaug og Eirný fram þessi meðlætisspjót. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir

Miðjarðarhafsblær og meðlætisspjót

Spjótin voru í anda Miðjarðarhafsins, þar sem mættust mozzarella, ólífur, padrón-paprikur, kisuberjatómatar og úrvals salami frá ítalska framleiðandanum Tariello. „Hér var hugmyndaflugið látið ráða ferðinni og allt passaði fullkomlega með krydduðu súpunni,“ segir Eirný og lætur sig dreyma.

Undurfagurt hlaðborð með ævintýralegu yfirbragði.
Undurfagurt hlaðborð með ævintýralegu yfirbragði. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir

Klassískur rækjukokteill fékk sér í tána

Sígildur rækjukokteill fékk nútímalegan blæ þegar hann var borinn fram í glösum, með rauðlauk, gúrku og grænum eplum. Í stað sítrónu var kokteillinn fullkomnaður með skvettu af nýja Sumar-gininu frá Og Natura, sem er bragðbætt með hundasúru og limónu.

„Þetta er náttúruleg og íslensk nálgun sem lyftir réttinum á næsta stig. Fersk hundasúra skreytti glösin og bætti við bæði lit og lyst. Síðan settu brakandi súrdeigsbrauð og myrjur settu punktinn yfir i-ið, ljósgræn ætisþistla og Parmigiano Reggiano myrja og svo fetaostamyrja toppuð með bláberjum og grænum chilli,“ segir Eirný en hún er iðin að fara ótroðnar slóðir þegar ostar eru annars vegar.

Föngulegt.
Föngulegt. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir

Íslenskur ferskleiki í hávegum hafður

Á borðum blöstu einnig við nýuppteknar íslenskar radísur og ilmandi ferskt salat sem gestir gátu nartað í á meðan sólin gyllti dalinn. „Loks var það desertinn sem töfraði konurnar upp úr skónum, Roquefort með þurrkuðum ananas og súkkulaðiplötum.

Spjótin voru hin frumlegustu.
Spjótin voru hin frumlegustu. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Eirný með Bloody Mary-súpuna.
Eirný með Bloody Mary-súpuna. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Íslensk ný uppskera.
Íslensk ný uppskera. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Desertinn var Roquefort með þurrkuðum ananas og súkkulaðiplötum.
Desertinn var Roquefort með þurrkuðum ananas og súkkulaðiplötum. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
Girnilegt að sjá.
Girnilegt að sjá. Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert