Hrekkjavöku-súkkulaðibitakökur Berglindar innihalda leynihráefni

Þessar súkkulaðibitakökur eru teknar upp á æðra stig með leynihráefni.
Þessar súkkulaðibitakökur eru teknar upp á æðra stig með leynihráefni. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Súkkulaðibitakökur eru eitt það allra besta á köldum vetrardögum, sérstaklega volgar með ískaldri mjólk. Þessar súkkulaðibitakökur eru hins vegar teknar upp á æðra stig með leynihráefni sem Berglind Hreiðars hjá Gotterí og gersemar laumar í ansi margar uppskriftir. Hún kann nefnilega listina að láta fólk missa sig yfir kökum og krásum sem hún töfrar fram með því að nota það.

Berglindi langaði að gera hrekkjavökukökur fyrir fylgjendur sína en langaði líka að prófa þessa uppskrift með súkkulaðidropum svo úr varð að hún útbjó þrefalda uppskrift.

„Ég gerði hrekkjavökukökur úr 1/3 og síðan notaði ég dökka súkkulaðidropa í 1/3 og hvíta súkkulaðidropa í 1/3,“ segir Berglind og er hæstánægð með útkomuna. Leynihráefnið hennar Berglindar er gamli góði Royal-búðingurinn en hann gerir kökurnar einstaklega djúsí og bragðgóðar.

Gaman er að bera þessar fram í hrekkjavökugleðinni sem er …
Gaman er að bera þessar fram í hrekkjavökugleðinni sem er fram undan og skreyta með viðeigandi hætti. Ljósmynd/Berlgind Hreiðars

Hrekkjavöku-súkkulaðibitakökur drauma þinna

Grunnuppskrift

  • 120 g smjör við stofuhita
  • 150 g púðursykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 egg
  • 1 pk. Royal-búðingur (duftið)
  • ½ tsk. matarsódi
  • ¼ tsk. salt
  • 150 g hveiti
  • Svo er hægt að leika sér með það sem fer saman við. Berglind gerði nokkrar tegundir og hér má sjá hvað hún setti í þær.

Hrekkjavökukökur

  • 1 pk. Royal karamellubúðing
  • 140 g M&M (appelsínugul, brún og græn)
  • 20 g hrekkjavöku-“sprinkles“
  • Súkkulaðidropar

Hrekkjavökukökur tvö og þrjú

  • Hér notaði Berglind 1 pk. Royal-vanillubúðing í hvora uppskrift
  • 150 g hvítir eða dökkir súkkulaðidropar

Aðferð:

  1. Þeytið saman smjör og púðursykur.
  2. Bætið eggi og vanilludropum saman við, skafið niður á milli og þeytið vel.
  3. Setjið búðingsduftið saman við og loks matarsóda, salt og hveiti.
  4. Skafið niður á milli og þegar deigið er orðið vel blandað má setja það sem hugurinn girnist saman við með sleif.
  5. Berglind blandaði M&M og kökuskrauti saman við eina uppskrift, hvítum súkkulaðidropum við þá næstu og dökkum súkkulaðidropum við þá þriðju.
  6. Gott er að kæla deigið í 30-60 mínútur og rúlla því svo í kúlur.
  7. Rúllið kúfaðri matskeið í kúlu (þarf ekki að vera fullkomin) og raðið á bökunarplötu með smá bili á milli því hún á eftir að fletjast út.
  8. Bakið við 175°C í 12-15 mínútur eða þar til kantarnir fara að gyllast. 

 

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert