Rosalegustu sörur sem bakaðar hafa verið

Ljósmynd/Valgerður Gréta Gröndal

„Það er fátt hátíðlegra en sörur. Við þekkjum þessar klassísku með möndlubotninum, súkkulaði og kaffi kreminu og hjúpað dásamlegu suðusúkkulaði. Þær eru sí vinsælar og á mörgum heimilum taka fjölskyldur sig saman og baka þær í sameiningu. Það er smá handavinna að útbúa sörur en útkoman er sannarlega þess virði,“ segir Valgerður Gréta Gröndal á GRGS.is, eða Valla eins og hún er betur þekkt sem, um þessar sörur sem eru algjör skyldubakstur!

„Þessar eru tilbrigði við þessar klassísku en almáttugur minn, þær eru sannarlega ekki síðri. Marsípanbotn í grunninn með unaðslegu karamellukremi og hjúpað með silkimjúku Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus. Karamelluna er hægt að kaupa tilbúna í krukkum í betri verslunum en það er einnig hægt að útbúa hana heima á auðveldan hátt. Uppskrift fylgir ef þið viljið fara þá leið. Líkt og með þessar klassísku geymast þær best í frysti og gott að bera þær fram hálffrosnar.“

Sparilegar Karamellu Doré sörur með marsípan botni og karamellukremi

Botnar:

  • 2 eggjahvítur
  • 1 dl sykur
  • 250 g kalt marsípan, rifið fínt

Leiðbeiningar

  1. Hitið ofninn í 180°C blástur.
  2. Þeytið saman eggjahvítur og sykur þar til blandan verður að stífum marengs.
  3. Rífið marsípanið saman við og hrærið varlega með sleikju.
  4. Setjið marengsinn í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið litlar kökur á bökunarpappírsklædda ofnplötu
  5. Gott að er hafa kökurnar í minni kantinum eða um 2 cm í þvermál.
  6. Bakið í 13-15 mín, fer eftir ofnum. Þær eru tilbúnar þegar þær eru orðnar gullbrúnar. Kælið vel áður en haldið er áfram.
  7. Krem: Setjið smjörið í skál og þeytið vel með handþeytara. Setjið rauðurnar, vanilludropana, karamelluna og flórsykurinn saman við og þeytið áfram. Skafið niður hliðarnar og þeytið áfram í góða stund. Best er að þeyta kremið vandlega. Þegar það er tilbúið veltið því aðeins fram og til baka í skálinni með sleikju til þess að losa aðeins um loftbólurnar sem myndast. Setjið kremið í sprautupoka með kringlóttum stút og sprautið á hverja köku. Magn eftir smekk. Frystið botnana með kreminu.

Karamellukrem:

  • 200 g mjúkt smjör
  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ½ dl þykk karamellusósa, uppskrift fylgir
  • 3 dl flórsykur

Hjúpur

  • 300 g Karamellu Doré súkkulaði frá Nóa Síríus

Þegar kökurnar eru frosnar í gegn útbúið þið hjúpinn.

Saxið Karamellu Doré súkkulaðið og setjið í skál sem þolir að fara í örbylgjuofn. Stillið á næstmesta hita og hitið súkkulaðið 15 sekúndur í senn og hrærið á milli. Þegar það er orðið vel bráðið en enn heilir bitar eftir takið þá skálina út og hrærið þangað til það er allt brætt. Þetta er svona lata aðferðin við að tempra súkkulaði og kemur alltaf vel út hjá mér.

Dýfið hverri köku í súkkulaðið og setjið á plötu. Mér finnst gott að vera með hreina og raka tusku við höndina og þurra af fingrunum þegar þess þarf.

Þegar kökurnar hafa allar verið hjúpaðar fara þær aftur í frystinn. Þegar þær eru frosnar í gegn er gott að setja þær í loftþétt box. Geymið í frystinum þar til það á að bera þær fram.

Karamellusósa í kremið

  • 200 g sykur
  • 90 g smjör í bitum
  • 1/2 bolli rjómi
  • 1/2 tsk. sjávarsalt

Aðferð:

Bræðið sykur við vægan hita og hrærið stöðugt í. Þegar sykurinn er bráðinn og orðinn vel gylltur, jafnvel svona

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert