Súkkulaðimúsin sem bragðast eins og jólin

Eitt sett sörumús að hætti Lindu Ben.
Eitt sett sörumús að hætti Lindu Ben. Mbl.is/Linda Ben

Enn einn girnilegi eftirrétturinn sem við sjáum á borðum fyrir hólin. Eitt sett sörumús að hætti Lindu Ben - gjörið svo vel. 

„Ég mæli með því að gera súkkulaðimúsina með fyrirvara en ekki setja músina ofan á botnana fyrr en samdægurs þar sem þeir blotna með tímanum og það er betra þegar þeir eru svolítið stökkir,“ segir Linda.

Lakkrís-súkkulaðimús að hætti Lindu Ben

  • 3 eggjarauður
  • 100 g vatn
  • 100 g sykur
  • 300 g Eitt Sett rjómasúkkulaði
  • 100 g mjúkt smjör
  • 500 ml rjómi
  • 300 g Barón Súkkulaði

Botnakröns

  • 3 eggjahvítur
  • 1/3 tsk. salt
  • 1/3 tsk. cream of tartar
  • 50 g sykur
  • 200 g flórsykur
  • 200 g möndlumjöl

Aðferð:

  1. Þeytið eggjarauður í hrærivél þar til blandan er orðin létt og ljós. Hitið vatn og sykur í potti í um 3 mínútur eða þar til sykurinn hefur náð að leysast upp í vatninu. Hellið sykurvatninu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Þeytið þar til blandan er loftmikil og nánast hvít að lit.
  2. Bræðið Eitt Sett súkkulaðið. Hellið því næst súkkulaðibráðinni saman við eggjablönduna í mjórri bunu og hrærið rólega á meðan. Stoppið reglulega og skafið hliðar skálarinnar með sleikju svo allt blandist vel saman. Skerið mjúka smjörið í litla bita og þeytið það saman við.
  3. Geymið kremið inni í ísskáp yfir nótt.
  4. Kveikið á ofninum og stillið á 175°C með yfir- og undirhita.
  5. Setjið eggjahvítur í skál ásamt salti og cream of tartar, þeytið þar til blandan freyðir og bætið þá sykrinum út í. Þeytið þar til stífir toppar myndast.
  6. Blandið saman flórsykri og möndlumjöli. Bætið út í eggjahvítublönduna og veltið varlega saman við með sleikju þar til samlagað.
  7. Hellið deiginu ofan í sprautupoka með hringlaga stút.
  8. Sprautið á smjörpappírsklæddar ofnplötur þannig að hver kaka sé u.þ.b. 4 cm í þvermál. Bakið í u.þ.b. 12 mín. Leyfið kökunum að kólna.
  9. Takið u.þ.b. 4-6 botna og brjótið hvern botn í u.þ. 2-4 bita, setjið í glös sem bera á súkkulaðimúsina fram í.
  10. Setjið súkkulaðimús yfir og sléttið toppinn.
  11. Bræðið helminginn af Barón súkkulaðinu yfir vatnsbaði, takið súkkulaðið af hitanum og brjótið hinn helminginn af súkkulaðinu út í súkkulaðið. Hrærið varlega saman þar til allt hefur bráðnað, setjið skálina helst ekki aftur ofan í heita vatnið, það er eðlilegt að þetta taki svolitla stund (með því að bræða súkkulaðið svona hægt verður það aftur stökkt þegar það stirðnar aftur).
  12. Setjið súkkulaði yfir músina með teskeið og sléttið svo varlega með teskeið. Leyfið súkkulaðinu að stirðna og berið svo eftirréttinn fram.

 

Mbl.is/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert