Spurt og svarað

Á þessari síðu er svarað algengustu spurningum varðandi Áskriftaravef mbl.is og notkun hans.

Hvernig get ég sótt eldri blöð í pdf-útgáfu?

Áskrifendur geta náð í PDF-útgáfu af Morgunblaðinu 30 daga aftur í tímann með því að velja gagnvirk útgáfa (html). Þegar blaðið birtist er smellt á hnappinn Dagatal efst hægra megin á síðunni, réttur dagur valinn. Svo er smellt á hnappinn PDF efst til vinstri og þar er hægt að opna allt blaðið eða ákveðna hluta þess.

Hvað kostar áskrift að Morgunblaðinu?
Fá ellilífeyrisþegar og öryrkjar afslátt af Morgunblaðinu?

Nei.

Hvernig get ég lesið Morgunblaðið á Netinu ?

Áskrifendur Morgunblaðsins geta lesið blaðið á netinu hér. Hægt er að lesa blaðið í gagnvirkri útgáfu (html) eða sækja PDF-útgáfuna af blaði dagsins. Viðkomandi þarf að vera áskrifandi og innskráður á mbl.is til að ná í blaðið. Efst í vinstra horninu fer fram innskráning/nýskráning á mbl.is.

Hvernig get ég lesið Morgunblaðið í spjaldtölvunni minni (iPad)?

Í iPad-spjaldtölvunni ferð þú í AppStore, skrifar í leitargluggann Morgunblaðið eða Mogginn. Þá geturðu náð í appið frítt. Allir geta sótt sér app Morgunblaðsins og notað það til að lesa fríblöð eins og Monitor, en einungis áskrifendur geta lesið Morgunblaðið í appinu. Þegar lesa á blaðið þarf að slá inn kennitölu og lykilorð, sem er það sama og notað er inn á mbl.is-vefinn.

Hvað er lykilorðið mitt hjá Morgunblaðinu og mbl.is, og hvernig nálgast ég það ?

Efst í vinstra horninu á mbl.is er hægt að innskrá sig eða nýskrá sig. Ef þú manst ekki lykilorðið, ýttu á Innskrá og svo Gleymt lykilorð?, í gluggann Auðkenni geturðu skrifað netfang, kennitölu eða notandanafn og þá færðu lykilorðið sent á netfangið þitt. Ef þú lendir í vandræðum þá geturðu haft samband við þjónustuver Moggans í síma 569 1100.

Ef ég er áskrifandi, fæ ég þá fríar smáauglýsingar á mbl.is?

Já, einstaklingar geta sett 10 fríar auglýsingar á 30 daga fresti. Auglýsingin birtist á mbl.is í 7 daga í senn.

Ég er áskrifandi og mig langar að kaupa mynd í myndasafni, fæ ég afslátt ?

Áskrifendur fá 50% afslátt af þremur stafrænum útgáfum mynda til einkanota á mánuði úr myndasafni Morgunblaðsins. Sjá verðtöflu myndasafnsins hér.

Ég er áskrifandi og mig langar að skoða minningargreinar, hvernig geri ég það ?

Til að skoða minningargreinar byrjarðu á því að skrá þig inn á mbl.is með notandanafni og kennitölu. Því næst ferðu inn á Greinasafnið, velur þar Minningaleit og slærð inn nafn hins látna. Áskrifendur Morgunblaðsins fá ókeypis aðgang að fimm greinum í Greinasafninu á 30 daga fresti.

Ég er að fara í frí, get ég fengið Morgunblaðið til mín í fríinu?

Hægt er að láta senda Morgunblaðið til sín víða um landið á meðan áskrifendur eru í fríi. Fjöldi sölustaða eru virkir fríþjónustustaðir þar sem þú getur nálgast blaðið þitt gegn framvísum fríþjónustumiða. Fríþjónustumiðana er hægt að fá hjá Morgunblaðinu áður en lagt er af stað í ferðalagið með því að hafa samband í síma 569 1122 eða senda póst á askrift@mbl.is.

Áskrifendum Morgunblaðsins bjóðast nokkrir valkostir þegar þeir fara í sumarfrí um landið. Áskrifendur geta:

  • sótt blaðið á sölustöðum Morgunblaðsins gegn framvísun Fríþjónustumiða á meðan upplag endist.
  • fengið blaðið sent á valda sumardvalarstaði innanlands.
  • óskað eftir því að Morgunblöðunum verði safnað saman og þau send heim til áskrifandans þegar fríinu lýkur.
  • leyft ættingum eða vinum að fá Morgunblaðið sent á meðan á fríi stendur.

Ath. Þjónustan er veitt lágmark í tvo daga og hana þarf að panta fyrir kl. 16:00 daginn áður.

dhandler