Langt síðan Everton vann Liverpool-slaginn (myndskeið)

Aðeins Stanley-garðurinn skilur að erkifjendurna Liverpool og Everton og er auðvelt að sjá báða velli á einni loftmynd. Liðin eigast við á Anfield í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta klukkan 20:15 í kvöld. 

Gengi liðanna til þessa á leiktíðinni hefur verið afar ólíkt. Liverpool er í toppsætinu með 40 stig, átta stigum meira en næstu lið, en Everton er í 17. sæti og með slæmum úrslitum í kvöld er möguleiki á að liðið verði í fallsæti eftir umferðina. 

Í spilaranum hér fyrir ofan má sjá upphitun fyrir leikinn, en hann verður í beinni textalýsingu á mbl.is og í beinni útsendingu á Símanum sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert