Topplið Liverpool vann öruggan sigur á Everton, 5:2, í grannaslag liðanna í 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld og heldur 8 stiga forskoti sínu á Leicester. Liðið hefur nú unnið 14 af 15 leikjum sínum í deildinni það sem af er tímabils.
Hvorki hefur gengið né rekið hjá Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum að undanförnu og hefur liðið tapað átta af síðustu ellefu leikjum sínum í deildinni og situr nú í fallsæti, með 14 stig í 18. sæti. Gylfi spilaði allan leikinn á miðri miðju Everton.
Hér fyrir ofan má sjá svipmyndir úr þessum afar skemmtilega leik.