Guðrún Bergmann - haus
15. september 2018

Léttist um 10 kíló á átján dögum.

Ég er búin að halda HREINT MATARÆÐI námskeið fyrir rúmlega 1.200 manns, en það er alltaf ánægjulet þegar frábær árangur næst. Hann náðist svo sannarlega hjá einni konu, sem langar að deila reynslu sinni undir nafnleynd með öðrum. Hreinsikúrinn samanstendur af þremur undirbúningsdögum og þremur vikum á hreinu fæðu, þar sem borða má ákveðnar fæðutegundir og sleppa öðrum.

Á 18. degi hreinsikúrsins höfðu bólgur í hnjám og fótum minnkað verulega hjá þessari konu, exem í hári var nánast horfið, svefninn var orðinn mun betri og sem bónus léttist hún um 10 kíló. Rétt á hælum hennar var svo karlmaður sem hafði léttst um 9,5 kíló, en gefum henni orðið:

GAT VARLA BEÐIÐ

“Ég ákvað að fara á HREINT MATARÆÐI stuðningsnámskeiðið til að vinna bug á bólgum og liðverkjum í líkamanum og athuga hvort mér tækist að bæta svefninn. Ég var komin með svo mikið meira en nóg af daglegri vanlíðan og verkjum. Að auki átti ég mér þann draum að léttast eitthvað í leiðinni.

Ég var spennt að byrja, því ég fann að ég þurfti á hvatningu að halda til að gera breytingar á mataræðinu, því ég var farin að hjakka svo mikið í sama farinu. Mér fannst líka kominn tími til að hægja aðeins á mér, því maður er alltaf á svo miklu spani og gera eitthvað uppbyggjandi fyrir mig.” 

MUNUR EFTIR FYRSTU VIKUNA

“Strax eftir fyrstu vikuna á hreinsikúrnum fann ég mikinn mun á eigin líðan. Ég hafði fylgt ráðum Guðrúnar um að fara semma að sofa og svaf reyndar meira en vanalega. Kannski var það vegna þess að mér fannst ég allt í einu hvílast betur og var ekki að vakna eins oft á nóttunni. Það var alveg dásamlegt.

Vikulegu fundirnir með Guðrúnu og daglegir póstar hennar í Facebook hópnum okkar hafa verið svo hvetjandi. Ég skil betur núna af hverju fólk ákveður að fara á námskeið til að fara í gegnum svona hreinsikúr. Stuðningurinn frá öðrum í hópnum skiptir svo miklu máli.

Á fundum og á Facebook höfum við haft tækifæri til að skiptast á skoðunum, deila uppskriftum, hvetja hvort annað áfram og leiðbeina með það hvar vörurnar sem við erum að nota fást – og svo auðvitað deila myndum af því sem við erum að elda. Þessi stuðningur hef skipt alveg ótrúlega miklu máli.”

ÁVINNINGURINN FRÁBÆR  

“Ávinningurinn af þessu námskeið hefur ekki valdið mér vonbrigðum. Á 18. degi (og ég á enn þrjá daga eftir) hafði dregið verulega úr bólgum í fótum og við hnén, ég er öll léttari á mér, exemið að hverfa úr hársverðinum og svo brosti ég bara út að eyrum eftir að hafa séð nýjar tölur á baðvigtinni – en ég hef léttst um 10 kíló.

Ég finn að þetta mataræði gerir mér svo gott að ég ætla að fylgja því í meginatriðum áfram eftir að hreinsun lýkur – og til að ná meiri árangri hef ég skráð mig aftur á næsta námskeið hjá Guðrúnu, sem verður í október.”

HEFURÐU ÁHUGA Á AÐ BÆTA HEILSUNA?

Sagan hér að framan er bara ein af fjölmörgum dæmum um góðan árangur, sem fylgir breyttu mataræði og bættum lífsvenjum. Þessi kona léttist óvanalega mikið, en mjög algengt er að konur séu að léttast um þetta 4,5-6,5 kíló á 3 vikum. Karlmenn eru að léttast þetta frá 4 og upp í 11 kg.

Hreinsikúrinn er þó ekki hugsaður sem megrunarkúr, en þegar ristillinn hreinsat léttist fólk oft mikið. Sjá nánari skýringu á því í viðtali við Hallgrím heitinn Magnússon lækni hér á mb.is “12 kíló geta safnast upp í þörmunum”. 

Aðalfókusinn er á að hreinsa uppsöfnuð eiturefni úr líkamanum með ákveðinni fæðu, bætiefnum og hæfilegum skammti af jákvæðu hugarfari, svo frumur hans geti endurnýjað sig.

Ef þú hefur áhuga á HREINT MATARÆÐI hreinsikúrnum finnurðu allt um hann HÉR!