Guðrún Bergmann - haus
21. maí 2020

Vörn gegn bitmýi

Um leið og allur gróður lifnar við, lifna skordýrin líka við. Í fyrra var það lúsmýið sem truflaði fólk mest og olli víða miklum bitfaraldri.

En hvort sem þú ert á svæði sem lúsmýið var á í fyrra og þess er hugsanlega að vænta á ný, eða ætlar að stunda útiveru eða veiðar þar sem mikið er af mýi, þá er frábært að verja sig með BUG BAN.

BUG BAN Í ÚÐABRÚSA

BUG BAN úðabrúsinn er nettur og auðvelt að hafa hann með sér í mittistösku eða bakpoka í göngu- eða veiðiferðum.

Brúsinn er hristur varlega og síðan er úðað útvortis á líkamann eftir þörfum. Eina sem þarf að passa sig á er að úða ekki of mikið.

Virku innihaldsefnin í BUG BAN eru blanda af náttúrulegu ilmkjarnaolíunum Citronella, Lemongrass, Rosmany og Thyme. Citronella hefur oft verið notuð ein og sér sem moskítóvörn, auk þess sem henni er bætt í útkerti og ilmolíuker.

BUG BAN ILMKJARNAOLÍA

Það er líka til BUG BAN ilmkjarnaolíublanda sem setja má í ilmolíulampa utandyra. Þá má í mesta lagi setja 15 dropa af BUG BAN í 30 ml af vatni. Ekki er ráðlagt að nota þessa ilmkjarnaolíublöndu á húðina.

Í blöndunni eru: 33,3% af Citronella olíu (Cymbopogon winterianus), 33,3% af Lemongrass olíu (Cymbopogon flexuosus), 16,7% af Rosemary olíu (Rosmarinus officinalis) og 16,7% af Thyme olíu (Thymus vulgaris/zygis).

VERÐU ÞIG MEÐ NÁTTÚRUEFNUM

Með þessar tvær BUG BAN vörutegundir úr olíum náttúrunnar geturðu varið þig á skaðlausan hátt fyrir bitmýi og moskítóflugum í sumar. Bara að muna að taka þær með í ferðalagið, hvort sem er innan- eða utanlands.

Gott er að geyma bæði úðabrúsa og ilmolíu á svölum og dimmum stað, milli þess sem BUG BAN er í notkun.

Neytendaupplýsingar: Þú færð BUG BAN náttúrulega úðann gegn bitmýi í Hverslun.is með 15% afslætti út maímánuð. BUG BAN ilmkjarnaolían fæst einnig í Hverslun.is. Báðar vörutegundir er einnig að finna í Nettó, Hagkaup, Fjarðarkaup og flestum apótekum.

Þú getur náð þér í ókeypis MORGUNHUGLEIÐSLU á síðunni minni með því að SMELLA HÉR!