8. nóvember 2021
Við megum vænta mikils titrings í pólitík, í Jörðinni og samfélögum heims í þessum mánuði. Framundan eru kannski mestu breytingar sem við eigum eftir að ganga í gegnum á lífsleiðinni.
Þá er gott að vera í innra jafnvægi og halda innri ró sinni.
Eftirfarandi listi er settur saman af Alex Elle og ég rakst á hann á Facebook. Langaði að deila honum með ykkur, því á honum eru mörg hollráð.
HÆTTU ÞESSU TIL AÐ ÖÐLAST INNRI FRIÐ:
- Rífast við fólk
- Eyða orku í einhliða sambönd
- Taka of mikið að þér þegar þú hefur ekki orku í það
- Sætta þig við og afsaka eitraða hegðun annarra því það er þægilegra en að gera breytingar
- Leyfa fjölskyldumeðlimum með fíknir eða önnur vanhæfnis vandamál að stela gleði þinni
- Reyna að laga fólk út frá kærleiksríkri umönnun
- Horfa framhjá mörkum þínum til að falla (óþægilega) að þörfum annarra
- Halda í takmarkandi sannfæringar um líf þitt, sjálfsmat og möguleika
- Þykjast vera hamingjusöm/-samur þegar þér líður illa
- Þegja og greina ekki frá þínum eigin þörfum
- Velta of mikið vöngum yfir fortíð þinni og því sem ekki er hægt að breyta
- Halda í fólk sem þú átt ekki samleið með lengur, vegna þess að þú hefur lagt svo mikið í samskiptin
- Að gera eins og hinir, því það er svo þægilegt
- Yfirsjást allt það góða í eigin lífi og bera líf þitt saman við líf annarra
- Fórna sjálfri/sjálfum þér, sannleika þínum og heildindum til að passa í hópinn
- Bíða eftir mati annarra á þér til að auka sjálfstraust þitt
- Reyna að breyta fólki sem er ákveðið í að breyta engu
Svo er alltaf hægt að ná sér í ókeypis MORGUNHUGLEIÐSLU á síðunni minni til að vinna að innri friði.
Ef þér fannst þessi listi áhugaverður, deildu honum þá endilega með öðrum.
Mynd: DreamLand_Media