Haraldur Örn - haus
1. maí 2010

Myndir af Vífilsfelli

Vifilsfell_april015Fór um daginn á Vífilsfell með hóp Fjallafélaga. Það var sakleysisleg snjókoma við upphaf ferðar. Þegar leið á ferðina fór hálka að myndast á gönguleiðinni. Niðurleiðin endaði með að verða mjög krefjandi þar sem varla var stætt á köflum vegna fljúgandi hálku. Á köflum voru ekki önnur ráð en að setjast á afturendann og láta sig gossa niður. Með góðri þolinmæði komust allir heilir niður.

Myndir úr ferðinni eru hér til hægri og á heimasíðu Fjallafélagsins www.fjallafelagid.is.