[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Erum við skák og mát ? Átt þú ekki næsta leik?

Þorvaldur Jóhannsson


 Á NÝBYRJUÐU ári velta margir því fyrir sér, hverra kosta er völ fyrir lýðveldið Ísland í kjölfar bankahrunsins mikla. Hverjum er um að kenna? Getum við unnið til baka traust alþjóðasamfélagsins á Íslenskt samfélag sem fór hamförum. Ekki var hlustað á vinsamlegar viðvörunarbjöllur sem glumdu hvarvetna í alþjóðasamfélaginu en áfram stiginn trylltur dansinn við gullkálfinn sem mest við máttum þar til yfir lauk. Nú liggur fyrir að allar vinaþjóðir nema góðir vinir Færeyingar settu okkur skilyrði um aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ef þær ættu að kasta til okkar bjarghring eftir hróp frá okkur um hjálp. Stórvinir okkar í henni Ameríku hikstuðu í stuðningnum en Rússar brostu og réttu fram hjálparhönd. Það vakti mikla tortryggni. Breska heimsveldið sá sig knúið til að beita okkur hryðjuverkalögum. Fáránlegt.
Alþjóðasamfélaginu og mörgum vinum okkar ofbauð glannaskapurinn og yfirgangurinn á víkingunum norður í Atlantshafi, sem hjuggu á báða bóga, eirðu engu og lögðu undir sig hvert vígið á fætur öðru í útrásinni. Íslenska þjóðin vissi lítið en dansaði ánægð með í græðgisveislunni miklu. Öryggisnetið sem standa átti traustan vörð um hagsmuni íslensku þjóðarinnar svaf illilega á verðinum, gatslitið og viljalaust. Einhvern veginn svona upplifi ég núið eftir hrunadansinn mikla. Við vorum bullandi meðvirk í „góðærinu“ og trúðum því ekki að veislunni miklu mundi ljúka. Gremja, sorg, ótti og hatur brjótast nú fram af miklum krafti. Leitin er hafin að sökudólgunum hinum einu sönnu til að svala þorstanum um stund. Allir vita hverjir þeir eru, sumir vita meira en aðrir en samt hafa þeir ekki enn fundist. Skrítið. Við höldum áfram leitinni í nafni réttlætisins og gleymum flestu öðru um hríð. Börn okkar og barnabörn standa nú frammi fyrir því að borga syndir okkar feðranna og mæðranna. Hér eru því sannarlega verkefni fyrir okkur að vinna saman. Nú liggur á að leika ekki fleiri afleiki. Af þeim er nóg komið. Aðeins bestu leikirnir koma til greina fyrir börnin okkar, annað eiga þau ekki skilið. En þá verðum við líka að vanda okkur. Bægjum frá reiðinni, sorginni og hefndinni. Gefum bjartsýni, gleði og samstöðu pláss í okkur til góðra verka. Eru ekki til góðir leikir í stöðunni? Hver veit? Hlustum fyrst, hugsum vel og þá má ætla að við finnum leiðina.
Við verðum að hugsa nokkra leiki fram í tímann sem m.a. þurfa að innihalda rétt svör við 5 spurningum.
1) Hvernig ávinnum við aftur traust alþjóðasamfélagsins?
2) Hvar og hvernig viljum við staðsetja okkur til framtíðar í samstarfi vinaþjóða?
3) Getum við haldið tryggð við íslensku krónuna okkar?
 4) Getum við með trúverðugum hætti tekið einhliða upp annan gjaldmiðil?
 5) Hvað kemur út úr aðildarviðræðum við Evrópusambandið?
Veist þú það? Er ekki rétt að skoða hvað þar er í boði og máta það síðan við okkar hagsmuni með þjóðinni? Nú átt þú leik. Skákklukkan gengur. Því miður ertu í tímahraki.
 

Höfundur er framkvæmdastjóri og ekkill sem tapaði m.a. fjármunum barna sinna.

Hnappur inn á Evróupvef

Sjónvarp

  • Telur að um misskilning sé að ræða

    Steingrímur J Horfa

  • Össur: „Diplómatískur sigur“

    „Ég er auðvitað ákaflega glaður og hamingjusamur með það að utanríkisráðherrarnir skuli hafa afgreitt þetta í dag. Það er diplómatískur sigur fyrir okkur Íslendinga Horfa

  • Leyfir mönnum að kæla sig

    Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að málin hafi þróast Íslendingum í vil innan Evrópusambandsins og hann segist vera bjartsýnn á að við fáum að halda okkar hlut hvað auð Horfa

  • Fjölþætt sannfæring

    Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segist hafa kosið samkvæmt sannfæringu sinni í kosningunni um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í dag og vísar á bug ásökunum um svipuhögg og fle Horfa

  • Blendnar tilfinningar

    Steingrímur J. Sigfússon sagði að það bærðust blendnar tilfinningar í hans brjósti að lokinni kosningu þar sem hann studdi þá tillögu að farið yrði í aðildarviðræður við ESB Horfa

Ekkert svar barst frá ytri þjóni. Vinsamlegast reynið aftur síðar. (500 Can't connect to mas:82)

Skoðanir annarra

Lárus L. Blöndal og Stefán Má Stefánsson

Í hvaða liði eru stjórnvöld?

HINN 26. febrúar sl Meira

Árni Þór Sigurðsson

Hvers vegna sögðu Norðmenn NEI?

Frændur okkar Norðmenn hafa tvívegis efnt til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að Evrópusambandinu, ESB, (áður Evrópubandalaginu), árin 1972 og 1992 Meira

Lýður Árnason

Kæru landsfundarmenn

Aðildarumsókn í ESB er draumur samfylkingar. Sjálfstæðismenn hafa fram að þessu ekki deilt þessum draumi. Meira

Jóhanna Jónsdóttir

Evrópusamstarf sparar vinnu og peninga

Þátttaka í Evrópusamstarfi hefur sparað íslensku stjórnsýsluna umtalsverða vinnu og fjármuni við mótun löggjafar, t.d. á sviði umhverfismála. Meira

Þorsteinn Ásgeirsson

“Kreppan” og ESB

BANKAHRUNIÐ og stöðvun útlána hefur sett stórt strik í fjárfestingarfyllirí landsmanna. Óraunhæft og brjálæðislegt húsnæðisverð hefur sigið á höfuðborgarsvæðinu og á eftir að síga enn Meira

Charles Wyplosz

Athugasemd við grein 32 hagfræðinga

  Á ÍSLANDI fara nú fram mikilvægar umræður um framtíðarskipan gjaldeyrismála. Ég hef fengið tækifæri til að fylgjast lítillega með því sem rætt hefur verið og ritað Meira

Árni Johnsen

Örlög Íslands öruggust í höndum Íslendinga

Íslenskar tilfinningar munu aldrei þola forsjá  annarra þjóða Meira

Kristján Vigfússon

Efnahagsleg- og pólitísk staða Íslands

Ísland og íslendingar hafa fundið á eigin skinni hvernig það er að vera einir og hálf umkomulausir í samfélagi þjóðanna síðast liðna mánuði Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Hvert yrði vægi Íslands innan ESB?

Því er gjarnan haldið fram af þeim sem vilja ganga í Evrópusambandið að innlimun í sambandið sé nauðsynleg til þess að við getum haft áhrif innan þess Meira

Ársæll Valfells og Heiðar Guðjónsson

Einhliða upptaka er lausn á gjaldeyrisvanda

Upptaka evru með inngöngu í ESB tæki of langan tíma, a.m.k. fimm ár. Því ber að íhuga vandlega einhliða upptöku gjaldmiðilsins. Meira

Elliði Vignisson

Eru aðildarviðræður nauðsynlegar til að kanna hvað ESB hefur upp á að bjóða?

Staðreyndin er sú að allir sem vilja geta séð hvað ESB hefur upp á að bjóða. Til þess þarf ekki aðildarviðræður. Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Á evrusvæðið framtíðina fyrir sér?

Tilkoma evrunnar var fyrst og fremst hugsuð sem stórt samrunaskref innan Evrópusambandsins. Tilgangurinn var öðru fremur pólitískur en ekki efnahagslegur, þ.e Meira

Axel Hall, Ásgeir Daníelsson, Ásgeir Jónsson, Benedikt Stefánsson, Bjarni Már Gylfason, Edda Rós Kar...

Einhliða upptaka evru er engin töfralausn

Íslendingar glíma nú við afleiðingar gjaldeyris- og fjármálakreppu. Gjaldeyriskreppan er í raun enn óleyst en úrlausn hennar slegið á frest með upptöku hafta á fjármagnsviðskiptum Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Er EES-samningurinn orðinn úreltur?

Ekkert bendir til þess að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) sé orðinn úreltur þó ýmsir hafi vissulega orðið til þess í gegnum tíðina að halda því fram Meira

Jóhanna Jónsdóttir

EES felur ekki í sér hefðbundið neitunarvald

EES-samningurinn felur ekki í sér neiturnarvald miðað við hefðbundnar skilgreiningar á neitunarvaldi ríkja innan alþjóðastofnanna. Meira

Davíð Þór Björgvinsson

Fullveldi og framsal valdheimilda: Samanburður á ESB og EES

Hér verður leitast við að skýra hvernig álitaefni um framsal ríkisvalds (fullveldis) og þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá horfa við með ólíkum hætti gagnvart Evrópusambandinu (ESB) og Evrópska efnah Meira

Hjörtur J. Guðmundsson

Getum við rekið þá?

Getum við rekið þá sem stjórna landinu okkar? Þetta er alger grundvallarspurning þegar rætt er um lýðræðið. Meira

Hjörleifur Guttormsson

ESB-aðild, evra og atvinnuleysi

Þrautalendingin til að fullnægja evru-skilyrðum yrði aukið atvinnuleysi langt yfir þau mörk sem hér hafa ríkt eða talist ásættanleg undanfarna áratugi Meira

Skúli Helgason

Samstaða um Evrópu

Þess vegna er lykilatriði að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, jafnt þeirra sem eru hlynntir aðild og mótfallnir komi að mótun samningsmarkmiðanna. Meira

Þorvaldur Jóhannsson

Erum við skák og mát ? Átt þú ekki næsta leik?

 Á NÝBYRJUÐU ári velta margir því fyrir sér, hverra kosta er völ fyrir lýðveldið Ísland í kjölfar bankahrunsins mikla. Hverjum er um að kenna? Meira

Andrés Pétursson

Fagna liðsinni formanns LÍÚ

Evrópusambandsaðild og upptaka evru er raunhæf leið sem getur aðstoðað okkur að halda uppi samkeppnishæfi þjóðarinnar. Meira

Engilbert Ingvarsson

Gegn umsókn í ESB á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins

Fulltrúar á Landsfundi eiga ekki, nauðbeygðir af áróðri ESB-trúarspekinga, að samþykkja umsókn í Evrópusambandið. Meira

Daniel Hannan

Áskorun til Íslendinga

Innganga í ESB fæli í sér algera örvæntingu, rétt eins og raunin var í tilfelli okkar Breta. Meira

Pálmi Jónsson

Góðir íslendingar, er EBS lausn?

SKÚLI Thoroddsen ritar athyglisverða grein í Morgunblaðið þann 14. des sl. Lokaorð greinarinnar eru; „að ekkert sé að óttast þó að af aðild Íslands verði….“ Hvar er þá fullveldi Íslands komið? Meira

Tengt efni