Express flýgur frá Akureyri á morgun

Iceland Express mun að öllum líkindum fljúga frá Akureyri á …
Iceland Express mun að öllum líkindum fljúga frá Akureyri á morgun. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Vélar Iceland Express til London og Kaupmannahafnar fara frá Akureyrarflugvelli á morgun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Iceland Express. Vélin til Kaupmannahafnar fer klukkan 13:00 og sú til London klukkan 15:00. 

Sætaferðir verða til og frá Akureyri. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru þó beðnir enn sem fyrr að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert