Icelandair með breytta flugáætlun á morgun

Flugvélar Icelandair á flugvellinum í Glasgow í Skotlandi.
Flugvélar Icelandair á flugvellinum í Glasgow í Skotlandi. Ólafur Örn Nielsen

Icelandair hefur tilkynnt breytingar á flugi á morgun, sunnudaginn 8. maí, vegna áframhaldandi óvissu um hvort Keflavíkurflugvöllur verður opinn fyrir flugumferð.

Tengistöð millilandaflugsins til Bandaríkjanna og Evrópu verður í Glasgow bæði í fyrramálið og síðdegis á morgun, líkt og síðdegis í dag. Fimm flug eru síðan sett upp á morgun á milli Glasgow og Akureyrar fyrir farþega sem eru annað hvort að koma til Íslands eða fara frá landinu á morgun. Fyrstu brottfarir frá Akureyri í fyrramálið eru klukkan 04.00 og eru rútuferðir í boði frá BSÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandair.

Reynt verður að tryggja að allir farþegar komist til síns áfangastaðar á morgun, þó svo það taki lengri tíma með millilendingunni í Glasgow.  Staðan er óljós, en Icelandair vill ekki hætta á að flug stöðvist og farþegar sitji fastir. Icelandair tilkynnir farþegum um breytingar með sms sendingum og tilkynningum á vef sínum og til fjölmiðla, en um fjögur þúsund farþegar eiga flug með félaginu á morgun.

Breytingarnar á morgun ná til flugs í fyrramálið frá New York, Boston og Seattle og til Kaupmannahafnar, Osló, Stokkhólms, London, Frankfurt, Parísar og Amsterdam, einnig til síðdegisflugs til Kaupmannahafnar, London og Osló, Boston, New York og Seattle. Þessi flug eru felld niður, en ný flug sett upp í staðin með tilliti til tengingarinnar í Glasgow.

Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um komu og brottfarartíma á vef Icelandair og vefmiðlum því breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert