Senda ekki út innheimtuseðla

Reuters

Avant og Lýsing mun ekki, ásamt SP-fjármögnun, senda út greiðsluseðla vegna lána í erlendri mynt þar til fyrir liggur hvernig staðið verður að útreikningi þeirra og innheimtu til framtíðar.

Neðangreint kemur fram á vef Avant:

„Vegna dóms Hæstaréttar um ólögmæti bílalána/samninga í erlendri mynt hefur skapast óvissa um hvernig farið skuli með slík lán varðandi endurútreikning og uppgjör. Avant hf. mun því ekki senda út innheimtuseðla vegna þessara lána/samninga þar til fyrir liggur hvernig staðið verður að útreikningi þeirra og innheimtu til framtíðar.

Hlé verður einnig gert á frekari innheimtuaðgerðum, riftunum og vörslusviptingum vegna framangreindra lána/samninga þar til niðurstaða er fengin.

Það skal tekið fram að þeir viðskiptavinir Avant hf. sem hafa nýtt sér greiðsluúrræði félagsins hafa ekki með því fyrirgert rétti sínum til leiðréttingar. Nánari grein verður gerð fyrir aðgerðum Avant hf. hér á vef félagsins eftir því sem efni gefast til en vonir standa til að ákvörðun um framvindu málsins liggi fyrir innan skamms.“

Þetta kemur fram á vef Lýsingar:

„Lýsing ásamt öðrum fjármálafyrirtækjum vinnur að því að leiðrétta höfuðstól bílasamninga í samræmi við nýfallinn dóm Hæstaréttar.

Áhrif nýfallinns dóms Hæstaréttar eru um margt óljós og getum við ekki á þessari stundu svarað því hvaða afleiðingar það hefur að greiða eða greiða ekki þegar útgefna greiðsluseðla. Kjósi viðskiptavinir að greiða með fyrirvara þá er hægt að senda tölvupóst þar um á thjonustuver@lysing.is og staðfestum móttöku þeirra með svarpósti.

Lýsing mun ekki senda út greiðsluseðla með gjalddaga í júlí vegna bílasamninga í erlendri mynt fyrr en það liggur fyrir hvernig útreikningum skal háttað.

Reynt verður eftir fremsta megni að fá niðurstöðu í þessi mál eins fljótt og auðið er, en beðið er eftir svari frá stjórnvöldum um hvort um verði að ræða frekari aðgerðir af þeirra hálfu.

Innheimtuaðgerðum verður frestað um sinn og á það einnig við um riftanir og vörslusviptingar. Í þeim tilfellum þar sem riftunaruppgjör hefur þegar átt sér stað ríkir alger óvissa á þessari stundu.„

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert