þri. 20. feb. 2018 14:34
Norðmaðurinn Håvard Holmefjord vann gullverðlaun í 500 metra skautahlaupi í gær.
Norðmenn og Þjóðverjar sigursælastir

Norðmenn og Þjóðverjar hafa verið sigursælastir allra þjóða á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kór­eu en ellefti keppnisdagurinn á leikunum var í dag.

Norðmenn og Þjóðverjar hafa unnið til 11 gullverðlauna og Kanadamenn koma næstir með 8 gullverðlaun.

Norðmenn hafa unnið til flestra verðlauna á leikunum en þeir hafa fengið samtals 29 verðlaunapeninga. Þjóðverjar koma næstir með 23 og Kanadamenn 19.

til baka