lau. 23. júní 2018 21:43
Rúrik Gíslason var í byrjunarliði Íslands gegn Nígeríu í gær og er kominn með milljón fylgjendur á Instagram.
Rúrik kominn með milljón fylgjendur

Rúrik Gíslason landsliðsmaður í knattspyrnu er kominn með milljón fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram. Þessum áfanga náði Rúrik í kvöld, en þegar HM í Rússlandi byrjaði var knattspyrnukappinn einungis með um 30 þúsund fylgjendur.

 

Þessar ótrúlegu vinsældir Rúriks á Instagram má rekja til leiksins gegn Argentínu, en eftir að hann kom inn á sem varamaður gegn Messi og félögum byrjaði fylgjendafjöldi hans að aukast á miklum hraða og nú viku seinna er hann kominn upp í eina milljón.

Frétt mbl.is

Einhverjir hafa eflaust grætt á því, en erlendar veðmálasíður tóku eftir þessum ævintýralega fylgjendafjölda Rúriks og buðu einhverjar þeirra notendum upp á að veðja á það hvort Rúrik næði milljón fylgjendum á meðan að HM stæði yfir.

Það hefur nú náðst, þrátt fyrir að þrjár vikur séu enn eftir af knattspyrnuveislunni í Rússlandi.

 

 

 



til baka