lau. 18. ágú. 2018 20:22
Orri Steinn Óskarsson fagnar marki í dag.
13 ára skorađi tvennu í 2. deild

Grótta vann 5:0-sigur á Hetti í 2. deild karla í fótbolta í kvöld. Hinn 13 ára gamli Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamađur í leiknum og skorađi tvö marka Gróttumanna. Ólíver Dagur Thorlacius, Valtýr Már Michaelsson og Dagur Guđjónsson skoruđu einnig fyrir Gróttu. 

Vestri er í toppsćtinu eftir 3:1-sigur á Víđi á heimavelli. Pétur Bjarnason kom Vestra yfir á ţriđju mínútu, en Mahdi Hadraoui jafnađi úr víti ađeins fjórum mínútum síđar. Sergine Modou Fall skorađi hins vegar tvö mörk fyrir Vestra áđur en fyrri hálfleikurinn var allur og mörkin urđu ekki fleiri. 

Afturelding vann sinn fyrsta leik í rúman mánuđ er liđiđ heimsótti Fjarđabyggđ og vann 3:0-sigur. Wentzel Steinarr R Kamban kom Aftureldingu yfir á fimmtu mínútu og Elvar Ingi Vignisson bćtti viđ tveimur mörkum fyrir hálfleikinn og ţar viđ sat. 

Ţróttur V. og Leiknir F. gerđu svo markalaust jafntefli á Vogabćjarvelli. Ţróttur er í sjöunda sćti deildarinnar og Leiknir í níunda sćti. Hér ađ neđan má sjá stöđuna í deildinni. 

  1. Vestri 31
  2. Kári 31
  3. Afturelding 30
  4. Grótta 30
  5. Völsungur 28
  6. Fjarđabyggđ 25
  7. Ţróttur V. 23
  8. Víđir 16
  9. Leiknir F. 16
  10. Höttur 14
  11. Tindastóll 11
  12. Huginn 9
til baka