Modern Family-stjarnan Sofia Vergara er ein glæsilegasta stjarnan í Hollywood og lítur alltaf óaðfinnanlega út á rauða dreglinum. Þegar hún er heima hjá sér er hún hins vegar bara eins og hver önnur kona.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2017/04/12/othekkjanleg_og_ungleg_an_farda/
Vergara birti mynd á Instagram af sér í eldhúsinu þar sem hún er með gleraugu og hárið tekið aftur. Hún líkist ekki mikið þeirri dívu sem birtist okkur vanalega enda fagmenn líklega búnir að eiga við hana í marga klukkutíma áður en hún skellir sér í síðkjólinn.