Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian virðist gera lítið annað en að sóla sig í baðfatnaði. Á dögunum birti Kourtney mynd af sér í sólbaði með Kris Jenner, 62 ára gamalli móður sinni, en þær mæðgur kunna greinilega að gera vel við sig.
Konurnar í Kardashian fjölskyldunni eru þekktar fyrir sólbrúna húð sína en það er þó ekki endilega öllum sólarstundunum að þakka. Þær fara mikið í sprey-tan og nota líklega mjög háa sólarvörn.