sun. 23. sept. 2018 22:36
Í Sunday Times er því slegið upp að Katla sé í þann mund að gjósa.
Ósátt við rangar fréttir af Kötlugosi

Eldfjallafræðingur sem gerði rannsóknir á útstreymi koltvísýring frá Kötlu, ásamt fleiri vísindamönnum, og ritaði grein um niðurstöðurnar í tímaritinu Geophysical Research Letters, er mjög ósáttur við grein um eldfjallið sem birtist í Sunday Times. Fyrirsögn greinarinnar er „Íslenskur risi að því kominn að gjósa“.

Evgenia Ilyinskaya segir í Facebook-færslu sem hún ritar í dag að blaðamaður Sunday Times hafi ekki rétt eftir henni í greininni og fyrirsögnina segir hún bókstaflega ranga. Töluvert mikið er gert úr því að gos í Kötlu geti haft mikil áhrif á flugsamgöngur í Evrópu og er í því samhengi vísað til gossins í Eyjafjallajökli árið 2010. Fram kemur í greininni að öskustrókurinn í Kötlu komi til með að verða enn stærri.

Hún segist hafa rætt við blaðamann í 20 mínútur og í því samtali hafi komið fram að vísindamenn væru ekki í aðstöðu til að spá fyrir um hvenær Katla muni gjósa eða hvort hraunkvika væri að byggjast upp.

Þá hefði hún sagt blaðamanni að ólíklegt væri að gos í Kötlu myndi hafa jafnmikil áhrif á flugsamgöngur og gosið í Eyjafjallajökli gerði. Hins vegar sé þveröfugt haft eftir henni.

Evgenia segist aldrei hafa sagt við nokkurn blaðamann að hraunkvika væri að byggjast upp, enda sýni rannsókninar ekkert um það. Samt sé þetta fullyrt í fréttaumfjöllun af málinu, en fleiri fjölmiðlar hafa tekið upp umfjöllun Sunday Times og slegið upp fyrirsögnum þess eðlis að Katla sé í þann mund að fara að gjósa.

Hún segir þetta ekki bara gefa lesendum rangar upplýsingar heldur geri þetta lítið úr henni sem vísindamanni og sérfræðingi á sínu sviði. Hún sé því virkilega reið.

Frétt mbl.is: Mikið út­streymi CO2 ekki merki um Kötlugos

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, ritaði einnig færslu í tengslum við fréttaflutning af rannsókninni á Kötlu, á Facebook í síðustu viku og sagði gæta nokkurs misskilnings.

Þar sagði hann að fram kæmi í greininni að útstreymi koltvísýrings frá Kötlu geti verið á bil­inu tíu til tutt­ugu þúsund tonn á dag sem er með því mesta sem þekk­ist í eld­fjöll­um. „Mæl­ing­arn­ar segja ekk­ert um hvort nú sé gos í aðsigi eða hve stórt næsta gos verður,“ skrif­aði Magnús Tumi og benti á að höf­und­ar fjalli hvergi um þann mögu­leika í grein sinni.

„Mæl­ing­arn­ar sýna hins­ veg­ar ótví­rætt að CO2 leit­ar upp í mikl­um mæli og hef­ur gert í ein­hver ár, hve lengi er ekki vitað en svipað út­streymi gæti hafa varað und­an­farna ára­tugi,“ sagði hann jafnframt.

 

 

 

til baka