Kóprabjalla og lirfur hafa fundist í innfluttu hundafóðri og vekur Matvælastofnun athygli á þessi á vef sínum. Um er að ræða kóprabjöllur (Necrobia rufibes) og lirfur þeirra, sem fundist hafa í tveimur lotum af Hill's gæludýrafóðrinu Prescription Diet, Canine Z/D í 10 kg sekkjum (lotur nr. 11-2019 og 12-2019).
Hefur innflytjandinn Vistor hf. innkallað þessar lotur í samráði við Matvælastofnun og er þeim viðskiptavinum sem hafa keypt hafa hundafóður úr umræddum bent á að þeir geti skilað því til þess dýralæknis sem fóðrið var keypt af eða í Suðurhraun 12a í Garðabæ á lager Distica.
Hafi hundaeigendur orðið varir við torkennilegar lirfur eða litlar bjöllur í hundafóðri hjá sér er þeim eindregið bent á að þrífa vel bæði fóðurílát sem og umhverfi þeirra. Einnig er mikilvægt að senda ábendingar til Matvælastofnunar og söluaðila fóðursins.
Bjöllurnar geta valdið skaða á heimilum, en hundum stafar þó ekki hætta af áti bjallnanna eða lirfa þeirra.
Vörumerki: Hills gæludýrafóður
Vöruheiti: Prescr. Diet, Canine Z/D 10 kg
Uppruni: Tékkland
Vörunúmer: 5341N
Nettómagn: 10 kg
Lotunúmer: 11-2019 og 12-2019
Framleiðandi: Hill's Pet Nutrition
Innflytjandi: Vistor hf. Hörgstún 2, Garðabæ
Dreifing: Dýralæknastofur um land allt