þri. 11. des. 2018 18:22
Hvammstangi. Ekkert manntjón varð í brunanum.
Bruni í bílskúr á Hvammstanga

Bruni varð í bílskúr við heimahús á Hvammstanga síðdegis í dag. Eldur kviknaði við þurrkara í bílskúrnum og er talið að það hafi gerst út frá rafmagni. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins, sem náði ekki að breiða úr sér.

Einhverjar skemmdir urðu inni í skúrnum af völdum vatns, sóts og reyks sem lagði um rýmið. Hugsanlegt er að einhver reykur hafi borist upp í íbúðarhúsið við bílskúrinn en skemmdirnar eru líkast til óverulegar, að sögn lögreglunnar á Norðurlandi vestra. 

 

til baka