mán. 17. des. 2018 13:21
Íslendingar virđast vera ansi duglegir ađ versla á netinu, ţótt einhverjum finnist ţađ ómissandi á ađventunni ađ ţrćđa verslanir og drekka í sig jólastemninguna.
153% aukning í netverslun raftćkja milli mánađa

Í nóvembermánuđi síđastliđnum jókst innlend kortavelta Íslendinga í netverslun um 15% frá sama mánuđi í fyrra en velta innlendra greiđslukorta Íslendinga í verslun jókst um 5% á sama tímabili, samkvćmt upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Verđbólga á tímabilinu, samkvćmt Hagstofu Íslands, mćldist 3,3%. Sem ađ einhverju leyti útskýrir hćrri kortaveltu í verslun en raunaukningin er samkvćmt ţví um 1,6%.

Jólaverslun fer nú ađ töluverđum hluta fram í nóvember međ stórum verslunardögum ađ erlendri fyrirmynd, eins og svörtum föstudegi (e. black Friday), degi einhleypra (singles day) og netmánudegi (e. cyber Monday)

Nokkuđ dró úr kortaveltu Íslendinga í verslun á haustmánuđum og var samdráttur í októbermánuđi til ađ mynda 4%, samanboriđ viđ október 2017. Ţetta kann ađ benda til ţess ađ neytendur séu farnir ađ bíđa međ jólainnkaupin fram ađ ţessum stóru afsláttardögum, enda virđast ţeir hafa fest sig í sessi á Íslandi.

Nóvember er mikill netverslunarmánuđur, ţar sem netverslanir nýta sér stóru verslunardagana óspart, en kortavelta í innlendri netverslun Íslendinga var rúmlega 81% meiri í nóvember síđastliđnum samanboriđ viđ október á undan. Innlend netverslun hefur ţví líklega aldrei veriđ meiri.

Ţessa árstíđarsveiflu má sjá á myndritinu hér ađ neđan:

 

 

 

Kortavelta Íslendinga hjá innlendum raftćkjaverslunum var 2,9% hćrri í nóvembermánuđi nú, samanboriđ viđ fyrra ár. Ţá var netverslun í flokknum 21,4% hćrri en í nóvember í fyrra. Á milli mánađa nam aukningin í flokknum 153,3% í netverslun, en sú tala varpar ljósi á mikilvćgi netverslunar í nóvember hjá raftćkjasölum. Heildarvelta í flokknum nam tćpum 2,6 milljörđum kr., ţar af nam netverslun 331 milljón. Hlutfall netsölu flokksins er ţví 13%.

Innlend fataverslun hefur veriđ í vexti undanfarna mánuđi, bćđi í verslunum og á netinu. Í nóvember var ţó lítils háttar lćkkun í flokknum eđa um 0,6% frá fyrra ári. Líkt og í öđrum flokkum jókst ţó netverslun međ föt í nóvember eđa um 20% frá sama mánuđi í fyrra.

Kortavelta Íslendinga í verslunum sem selja heimilisbúnađ var 15% hćrri í nóvember í ár samanboriđ viđ fyrra ár. Netverslun međ heimilisbúnađ tók einnig kipp og var 28% hćrri á ár en í fyrra. Svipađa sögu er ađ segja af byggingavöruverslunum, ţar sem netverslun jókst um rúm 27% í nóvember í ár, samanboriđ viđ fyrra ár.

 

til baka