Danir tóku stórt skref í áttina ađ undanúrslitum á heimsmeistaramóti karla í handbolta međ 25:22-sigri á Ungverjalandi í Herning í kvöld. Danir náđi yfirhöndinni snemma leiks og héldu út öruggu forskoti allan leikinn.
Danir eru efstir í milli riđli 2 međ sex stig, eins og Svíţjóđ. Međ sigri á Egyptalandi í nćsta leik gulltryggja Danir sér sćti í undanúrslitum. Mikkel Hansen skorađi sjö mörk fyrir Dani og Zoltan Szita var markahćstur Ungverja međ fimm mörk.
Lćrisveinar Patreks Jóhannessonar í Austurríki leika viđ Aron Kristjánsson og lćrisveina hans í Barin um 19. sćtiđ. Austurríki tapađi fyrir Argentínu í kvöld, 24:22 og er liđiđ búiđ ađ tapa fimm leikjum í röđ eftir sigur í fyrsta leik.
Sebastian Frimmel skorađi átta mörk fyrir Austurríki og Federico Fernandez gerđi sex fyrir Argentínu.