fim. 18. apr. 2019 05:30
Lögregla leitar færri nú en í ár.
30 barna hefur verið leitað í 65 skipti

Færri leitarbeiðnir vegna týndra barna hafa borist lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í ár en á sama tíma í fyrra.

Það sem af er þessu ári eru beiðnirnar orðnar 65 talsins og varða þær 30 börn, en nokkuð er um að sama barnsins sé leitað oft, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sinnir þessu verkefni. Hann segir að fimm af þessum 30 börnum sprauti sig með fíkniefnum, eitt þeirra hafi gert það frá 13 ára aldri. Hann óskar eftir fjölbreyttari úrræðum.

 

til baka