fim. 18. apr. 2019 12:19
Báturinn Stormur sökk í Reykjavíkurhöfn í gær. Unnið er að því að hífa hann upp.
Stormur sökk í Reykjavíkurhöfn

Lítill bátur með utanborðsmótora sem ber nafnið Stormur sökk í Reykjavíkurhöfn í gær. Unnið er að því að ná honum upp úr höfninni. 

„Ég hugsa að hann hafi einfaldlega yfirfyllst af vatni. Það gæti verið að dælan hafi slegið út hjá þeim eða eitthvað slíkt,“ segir Gísli Jóhann Hallsson, yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum. „Síðan var auðvitað afar slæmt veður í fyrradag,“ bætir hann við. 

Unnið verður að því í dag að hífa bátinn á land, en útlit er fyrir að ekki verði umhverfisspjöll. „Það er engin mengun, ekki dropi sjáanlegur og enginn voði,“ segir Gísli Jóhann. 

til baka