fös. 15. nóv. 2019 09:00
Harry Kane fagnar einu af mörkum sínum í gærkvöld.
Kane í sögubækurnar

Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins í knattspyrnu, skráði nafn sitt í sögubækur enska landsliðsins þegar hann skoraði þrennu í 7:0 sigri Englendinga gegn Svartfellingum í undankeppni EM í gærkvöld.

Kane varð þar með fyrsti leikmaður enska landsliðsins til að skora þrennu í tveimur leikjum í röð á Wembley en hann skoraði þrjú mörk í 6:0 sigri Englendinga á móti Búlgörum.

Kane, sem er 26 ára gamall, er kominn upp í sjötta sæti yfir markahæstu leikmenn enska landsliðsins frá upphafi en hann hefur skorað 31 mark í 44 leikjum. Hann komst í gær upp fyrir leikmenn eins og Frank Lampard og Alan Shearer.

Markahæstu leikmenn enska landsliðsins, leikir í sviga:

53 - Wayne Rooney (120)
49 - Bobby Charlton (106)
48 - Gary Lineker (80)
44 - Jimmy Greaves (57)
40 - Michael Owen (89)
31 - Harry Kane 31 (44)

til baka