fös. 15. nóv. 2019 13:00
Rýnir segir Stöđu pundsins vera eina af bestu skáldsögum Braga Ólafssonar. „Hún er vel stíluđ, forvitnileg og heldur betur bráđskemmtileg.“
Bćkur - Skáldsaga: Flöktandi gengi, dćgurtónlist, líf og dauđi

Bragi Ólafsson er meistari hins órćđa tvístígandi hiks í íslenskum bókmenntum. Persónur hans rekur oft ađgerđalitlar gegnum lífiđ, ţćr axla ógjarnan ábyrgđ á ţví sem gerist, taka ţví bara sem gefnu, og tilviljanir í hversdagslífinu geta skipt sköpum um ţađ hvernig fer. Ţetta hikandi fólk getur fariđ í taugarnar á sumum ţeim framtakssömu, sem vilja ađ persónur hafi meira um örlög sín ađ segja – en ég hef lengi veriđ ađdáandi ţess margbrotna en ţó hversdagslega fólks sem Bragi skapar. Og mćđginin Madda og Sigurvin, sem lengst af ţessarar sögu eru, eins og segir á bókarkápu, „hálffertug ekkja og unglingur međ nýtilkominn tónlistaráhuga“, eru einhverjar skemmtilegustu og um leiđ brjóstumkennanlegustu persónur sem Bragi hefur skrifađ. Og eftir ađ hafa fariđ gegnum nokkuđ ţvćlinn inngang, ţá bćđi rígheldur og hrífur vel spunnin sagan um ţau mćđgin.

Sagan gerist ađ mestu upp úr miđjum áttunda áratug liđinnar aldar og fyrir miđju eru ţau mćđgin, í sárum eftir ađ eiginmađurinn og fađirinn sem einnig hét Sigurvin en var kallađur Eldri fyrirfór séu ári áđur. Sagan hefst er Madda tekur ađ halda dagbók, hikandi og laumulega, og gegnum hana fáum viđ innsýn í líf hennar, minningar og hugmyndir. Sögunni lýkur síđan er dagbókin er fullskrifuđ. Fćrslurnar í henni birtast í skáletri en á milli flćđir jafnframt annarskonar og óhikađri fyrstu persónu frásögn konunnar.

Persónugalleríiđ er skrautlegt og vel mótađ, flestar persónur dregnar skýrum og athyglisverđum dráttum, og velti rýnir fyrir sér hvort sjá mćtti ţar aukna reynslu höfundarins af ţví ađ skapa persónur fyrir leiksviđ. Eldi var ráđríkur sósíalisti, blađamađur á Ţjóđviljanum sem nöturleg saga tengd geimfaranum Júrí Gagarín loddi viđ. En hann var ekki allur ţar sem hann var séđur. Madda kemst smám saman ađ ýmsu sem hann hefur haldiđ leyndu fyrir henni og mögulega skýrir hvers vegna hann tók líf sitt, og hann var ekki sá eini sem nćrri henni hefur stađiđ sem ţađ hefur gert. Viđ sögu koma líka ólíkir vinir og vinkonur, ástmenn og nágrannar – eins og morđinginn sem selur flugelda í bílskúr viđ nćsta hús, skrautlegir drukknir listamenn og sérkennlegir ćttingjar Möddu sem búa á eyju fyrir Vesturlandi. Eldri hafđi átt vin á Bretlandi og Madda á í samskiptum viđ hann og hvetur sá ţau mćđgin til ađ koma í heimsókn og ţótt ţau hafi ekki mikiđ handa á milli ţá ţykir ţeim ţađ óneitanlega spennandi hugmynd og taka skref inn í ţá óvissu, skref sem eiga eftir ađ hafa afleiđingar fyrir líf ţeirra.

Kjarninn í frásögninni er síđan samskipti mćđginanna. Sigurvin segir ekki margt en sambandiđ ţróast međ markvissum hćtti og kemur ţar viđ sögu einn megindrifkraftur frásagnarinnar en hann byggist á áhuga persónanna á ólíkri tónlist. Eldri hafđi dáđ tónlist hins sólbrúna trompetleikara Herb Alperts (sem vinur hans segir ađ sé einhverskonar „eftirlíking af músík. Fyrir gamalmenni.“). En viđ upphaf sögu hvetur Madda unglinginn sinn til ađ panta sér plötur frá útlöndum og tekur hann forvitinn ađ feta sig inn í heim dćgurtónlistar ţess tíma. Leiđarminni í sögunni tengist einmitt ţessum erlendu pöntunum en ţađ er flöktandi stađa pundsins sem titill bókarinar er sóttur í. Og hluti af galdri frásagnarinnar er einmitt fjölţćttar vísanir í og umrćđur um fréttir, dćgurmenningu og listir ţessa tíma, ekki bara allskonar tónlist heldur líka kvikmyndir og skáldskap, ţar sem Dagur Sigurđarson og fleiri koma viđ sögu.

Seint í sögunni, ţegar komiđ er nćr okkur í tíma, spyr Madda sig hvort ţau mćđginin hafi lifađ spennandi lífi. „Varla í augum sögumanns sem tćki ađ sér ađ segja frá ćvum okkar. Svara ég. Og ţađan af síđur fyrir lesandann sem legđi á sig ađ lesa ţann texta.“ (232) En eins og áđur hefur gerst í sögunni ţá skilur Madda ekki endilega hvađ ađrir hugsa, hvađ ţá lesandi ţessara orđa. Ţví Stađa pundsins, frásögnin af lífi ţeirra Sigurvins, sem henni kann ađ hafa ţótt óspennandi, er ein af bestu skáldsögum Braga. Hún er vel stíluđ, forvitnileg og heldur betur bráđskemmtileg.

Einar Falur Ingólfsson

til baka