fös. 15. nóv. 2019 10:30
Stórleikarinn Michael Keaton grípur í Fiji-flösku á Golden Globe-hátíðinni 2017. Í janúar munu stórstjörnur Hollywood drekka íslenskt vatn.
Munu drekka íslenskt vatn á Golden Globe

Sjónvarps- og kvikmyndahátíðin Golden Globes hefur samið við Icelandic Glacial um að íslenska lúxusvatnið verði samstarfsaðili hátíðarinnar á næsta ári. Hollywood Reporter greinir frá tíðindunum og segir Icelandic Glacial með þessu ryðja í burtu vatns-merkinu Fiji.

Það virðist hafa kastast í kekki á milli Fiji og Golden Globe í kjölfar óvæntrar uppákomu á verðlaunaathöfninni í byrjun þessa árs. Hafði Fiji ráðið laglega unga konu, Kelleth Cuthbert að nafni, til að standa með bakka af vatnsflöskum og bjóða fræga fólkinu, einmitt á þeim stað á rauða dreglinum þar sem hefð er fyrir því að sjónvarps- og kvikmyndastjörnurnar staldri við og leyfi ljósmyndurum að mynda sig í bak og fyrir. Þótti Cuthbert svo glæsileg að hún fékk að fljóta með í mörgum af þeim myndum sem síðan voru birtar í fréttum slúður- og glanstímarita um verðlaunaathöfnina.

Fiji greip tækifærið og hleypti af stokkunum markaðsherferð sem byggði á sýnileika Cuthbert á viðburðinum, og eins og svo oft vill gerast í Bandaríkjunum höfðaði hún mál á hendur vatnsfyrirtækinu.

Samstarfið við Icelandic Glacial felur m.a. í sér að íslenska fyrirtækið skuldbindur sig til að láta vatnsflöskur af hendi rakna til mannúðarstarfs. Þá verður vatnið á hátíðinni framreitt í glerflöskum en ekki í plasti.

Golden Globe-verðlaunahátíðin fer fram 5. janúar næstkomandi.

til baka