Dani lést í fjallgönguslysi í Nepal samkvæmt tilkynningu frá borgaraþjónustu danska utanríkisráðuneytisins. Danskir fjölmiðlar greina frá þessu en fátt er vitað frekar hvað gerðist.
Samkvæmt fjölmiðlum í Nepal var maðurinn á niðurleið eftir að hafa klifið tindinn Imja Tse, sem er þekktari undir heitinu Island, í Himalajafjöllunum. Island er 6.189 metrar að hæð. Fjallgöngumaðurinn er talinn hafa fallið 200 metra og látist strax.
Sjá nánar hér og hér