Fólk sem notar líkamsræktarstöðvar til að hreyfa sig og styrkja líkamann tók gleði sína á ný í gær þegar stöðvarnar opnuðu dyr sínar eftir rúmlega tveggja mánaða hlé.
Fólk mætti í misjöfnu ástandi, eftir sjálfskipaða sóttkví eða útiæfingar.
Líf var í tuskunum í pallaleikfimi hjá Önnu Eiríksdóttur í Hreyfingu í Glæsibæ og svitinn perlaði af þátttakendum.