þri. 26. maí 2020 12:50
Hægt að auglýsa störf án staðsetningar

Forsætisráðuneytið hefur nýverið lokið við skilgreiningu starfa sem unnt væri að vinna utan ráðuneytisins. Niðurstaða greiningar gefur til kynna að stöðugildi fjögurra sérfræðinga væri unnt að auglýsa án staðsetningar yrðu störfin laus til umsóknar.

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Albertínu Friðbjargar Elíasdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, um aðgerðaáætlun byggðaáætlunar.

Enn fremur kemur fram í svarinu að ráðuneytið hafi ekki ráðið í starf utan höfuðborgarsvæðisins í samræmi við áætlunina.

Í byggðaáætluninni er gerð krafa um að 5% auglýstra starfa skuli vera án staðsetningar fyrir árslok 2021 og 10% fyrir árslok 2024. 

Í svari forsætisráðherra kemur fram að fjárveitingar, þróun verkefna og ákvarðanir um skiptingu stjórnarmálefna á milli ráðuneyta hafi úrslitaáhrif á þróun fjölda starfsmanna í ráðuneytum og um leið ráða mestu, ásamt starfsmannaveltu, hversu hratt gengur að fylgja eftir aðgerðaáætlun byggðaáætlunar um störf án staðsetningar.

Byggt verður á greiningunni þegar störf verða auglýst laus til umsóknar í ráðuneytinu og ný störf sömuleiðis.

 

 

til baka