þri. 26. maí 2020 13:01
Kjölur.
Útkall á Kili

Lögreglan á Blönduósi þurfti að óska eftir aðstoð björgunarsveitarinnar Blöndu í morgun vegna útkalls á Kjalvegi. Þar sátu einhverjir fastir í aurbleytu en vegurinn er lokaður allri umferð.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni á Twitter segir svo um ástandið á hálendinu: Á meðan frost er að fara úr jörð eru hálendisvegirnir viðkvæmir og bera ekki umferð. Akstursbann er þess vegna á mörgum hálendisvegum. 

til baka